Viðburðir þann

Á flugi yfir Vatnajökul
05.11.2003, kl.16:00 - 16:00 Almennur fundur

Ríki Vatnajökuls

Er samstarf í ferðamálum raunhæfur kostur ?

Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu og Ferðamálafélag Skaftárhrepps boða til sameiginlegs málþings á Hótel Skaftafelli miðvikudaginn 5. nóvember 2003 kl. 16.00. Fjallað verður um samstarf í ferðamálum og markaðssetningu á svæði Ferðamálafélaganna, sem nær frá Mýrdalssandi og austur í Lón. Dagskrá: Auðlindin Ísland: Elías B. Gíslason, skrifstofu Ferðamálaráðs Akureyri. Ferðamálaráð eystra: Gunnar Vignisson, Þróunarstofu Austurlands. Ferðamál í Suðurkjördæmi: Sigurður Bjarnason, Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands. Upplýsingamiðstöðvar: Pétur Rafnsson, verkefnisstjóri Ferðamálaráðs. Kynning verkefnis til Norðurslóðaáætlunar ESB: Rannveig Ólafsdóttir, forstöðumaður Háskólasetursins á Hornafirði. Sjónarmið ferðaþjónustunnar: Ásmundur Gíslason, formaður Ferðamálafél. A- Skaft. og Erla Ívarsdóttir, ferðaþjónustubóndi Geirlandi. Sjónarmið sveitarfélaganna Hornafjarðar og Skaftárhrepps. Að loknum framsöguerindum verða umræður um málefnið. Að loknum fundi er sameiginlegur kvöldverður á Hótel Skaftafelli. Verð kr. 2.000. Skráning á málþingið og í kvöldverðinn er í síma: 478 1029, 487 4645, 892 9650 eða á netföng: brunnhol@eldhorn.is og olafiaj@centrum.is fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 4. nóvember. Málþingið er opið öllum og er fólk í ferðaþjónustu og í sveitarstjórnum og nefndum sveitarfélaga sérstaklega hvatt til að mæta.

Umsjónaraðili

Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu
Árnanesi
780  Höfn

arnanes@arnanes.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica