Viðburðir þann

Ljúfir tónar
14.08.2003, kl.20:00 Tónleikar

Kammersveitin Ísafold í Nýheimum!

Kammersveitin Ísafold heldur tónleika í Nýheimum 14. ágúst. Ísafold er skipuð 17 ungum tónlistarmönnum sem stundað hafa framhaldsnám í tónlist og hafa þegar skarað fram úr á sínu sviði. Á efnisskránni eru nokkur af öndvegisverkum 20. aldar sem sjaldan hafa heyrst hér á landi. Flutt verða 6 verk eftir jafn mörg tónskáld og er efnisskráin svohljóðandi: Charles Ives The unanswered question Anton Webern Sechs stucke op. 6 Igor Stravinsky Ragtime Edgar Varése Octandre Witold Lutoslawsky Dance Preludes Haukur Tómasson Stemma Auk þess að flytja verkin mun hljómsveitin kynna þau og höfunda þeirra. Þannig vilja flytjendurnir færa tónlistina nær áheyrendum og gera hana aðgengilegri fyrir þá sem ekki þekkja. Kammersveitin Ísafold var stofnuð á haustdögum 2002 og er þessi tónleikaferð því fyrsta verkefni hennar. Hópurinn samanstendur af ungum hljóðfæraleikurum sem eru í framhaldsnámi erlendis eða að ljúka námi hér heima. Hugmyndin á bakvið stofnun hljómsveitinarinnar var að búa til hóp sem gæti starfað sjálfstætt og á eigin forsendum án þess að vera bundinn öðrum í vali á tónlist og umgjörð tónleika.

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica