Viðburðir þann

Páll Sveinsson
09.08.2003, kl.12:30 - 14:30 Sýning

Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson verður til sýnis

Douglas-flugvél Landgræðslunnar Pál Sveinsson kemur til Hafnar n.k. laugardag 9. ágúst og gefst þá öllum tækifæri á að skoða þennan merkisgrip á Hornafjarðarflugvelli frá kl. 12:30 til 14:30. Það var árið 1972 sem Flugfélag Íslands sem gaf Landgræðslunni Douglasvélina Gljáfaxa TF-ISH, en hún hafði áður verið notuð til farþegaflugs. Flugvélinni var gefið nafnið Páll Sveinsson og fékk einkennisstafina TF-NPK. Flugvélin sem er orðin 60 ára gömul hefur nú í 30 ár dreift áburði til landgræðslu og hefur henni verið flogið af flugmönnum í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Þeir sem hafa flogið Páli Sveinssyni hafa gert það endurgjaldslaust í þágu landgræðslu frá upphafi landgræðsluflugsins.

Umsjónaraðili

Flugfélag Íslands hf
Hornafjarðarflugvöllur
780 Hornafirði

flugfélag.is
www.airiceland.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica