Viðburðir þann

Jöklasýning á Höfn

04.07.2003 - 30.08.2003, kl. 13:00 - 22:00 Menning Jöklasýning í Vöruhúsi

Náttúruvísindi - Þjóðlegur fróðleikur - Listir - Minjagripir og vandað íslenskt handverk. Sýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Lesa meira
 
Rúna og Gísli í Æfintýri á gönguför

28.07.2003 - 02.08.2003, kl. 11:00 - 19:00 Menning Sögusýning Leikfélags Hornafjarðar

Í Nýheimum

Í tilefni af fjörutíu ára afmæli Leikfélags Hornafjarðar hefur verið sett upp sýning í Nýheimum. Þar eru sýndar ljósmyndir frá ýmsum verkum leikfélagsins síðustu 40 árin. Þar er hægt að skoða leikskrár og margt fleira frá starfsemi félagsins. Sýningin er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 11:00 - 19:00 og föstudaga kl. 11:00 - 17:00. Lesa meira
 
Vetur, börn að leik eftir Ásgrím Jónsson

01.08.2003 - 15.09.2003, kl. 13:00 - 18:00 Menning Austfirskt landslag í íslenskri myndlist

Pakkhúsið

Málverkasýning sem er samstarfsverkefni Stofnunar Gunnars Gunnarssonar og Menningarmiðastöðvar Hornafjarðar í Pakkhúsinu á Höfn.Skýning sem var áður til sýnis á Skriðuklaustri. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur valdi verkin á sýninguna og ritaði texta fyrir sýningarskrá, sem er til sölu á staðnum. Lesa meira
 
Flugeldar á Jökuslárlóni

02.08.2003, kl. 23:45 Skemmtanir Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Jökulsárlón stendur fyrir flugeldasýningu á Jökulsárlóni og hefst sýningin um miðnætti. Veitingarsalan verður opin fyrir þá sem vilja fá sér eitthvað gott í gogginn. Viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Atburðirinn er í boði Jökulsárlóns. Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica