04.07.2003 - 30.08.2003, kl. 13:00 - 22:00
Menning
Jöklasýning í Vöruhúsi
Náttúruvísindi - Þjóðlegur fróðleikur - Listir - Minjagripir og vandað íslenskt
handverk. Sýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Lesa meira
Í Nýheimum
Í tilefni af fjörutíu ára afmæli Leikfélags Hornafjarðar hefur verið sett upp sýning í Nýheimum. Þar eru sýndar ljósmyndir frá ýmsum verkum leikfélagsins síðustu 40 árin. Þar er hægt að skoða leikskrár og margt fleira frá starfsemi félagsins.
Sýningin er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 11:00 - 19:00 og föstudaga kl. 11:00 - 17:00.
Lesa meira
Pakkhúsið
Málverkasýning sem er samstarfsverkefni Stofnunar Gunnars Gunnarssonar og Menningarmiðastöðvar Hornafjarðar í Pakkhúsinu á Höfn.Skýning sem var áður til sýnis á Skriðuklaustri. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur valdi verkin á sýninguna og ritaði texta fyrir sýningarskrá, sem er til sölu á staðnum.
Lesa meira
Jökulsárlón stendur fyrir flugeldasýningu á Jökulsárlóni og hefst sýningin um miðnætti. Veitingarsalan verður opin fyrir þá sem vilja fá sér eitthvað gott í gogginn. Viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Atburðirinn er í boði Jökulsárlóns.
Lesa meira
Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson verður almenningi til sýnis á Hornafjarðarflugvelli laugardaginn 9. ágúst n.k. frá kl. 12:30 - 14:30. Allir velkomnir
Lesa meira
2. flokkur karla, c - riðill
Meistaraflokkur kvenna, 1. deild b - riðill
12.08.2003, kl. 13:00
Menning
Eyðibýlaskoðun
Nú gefst krökkum og unglingum kostur á að fara með starfsmönnum Menningarmiðstöðvar og skoða valin eyðibýli hér í sveitarfélaginu. Skemmtileg og fróðleg ferð. Lagt af stað frá Nýheimum kl.13:00. Ferðin kostar kr.500.
Mikilvægt er að skrá sig í síma 470 8050.
Lesa meira
13.08.2003, kl. 17:00
Íþróttir
Sindri - KBS
5. flokkur karla A lið
Síðustu leikir 5. flokks karla þetta árið. Mætum og styðjum strákana
13.08.2003, kl. 17:50
Íþróttir
Sindri - KBS
5. flokkur karla b lið
Síðasti leikur 5. flokks karla þetta árið. Allir á völlin
Dagana 14. - 21. ágúst mun kammersveitin Ísafold ferðast um landið og halda tónleika á sjö stöðum. Fyrstu tónleikarnir eru í Nýheimum á Höfn þann 14. ágúst. Ísafold er skipuð 17 ungum tónlistarmönnum sem stundað hafa framhaldsnám í tónlist og hafa þegar skarað fram úr á sínu sviði.
Lesa meira
16.08.2003, kl. 16:00
Íþróttir
Sindri - KS
2. deild karla
Stórleikur í 2. deild. Tekst okkar mönnum að þoka sér upp töfluna! Mætum öll á völlin og styðjum við bakið á strákunum okkar. Áfram Sindri
19.08.2003, kl. 19:00 - 19:00
Íþróttir
Sindri - KFR
3. flokkur karla, c - riðill
Guðsþjónusta í Hafnarkirkju kl. 20:00. Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving annast tónlistarflutning. Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur flytur hugvekju og annast altarisþjónustu.
Lesa meira
Lifandi tónlist á Hótel Höfn. Spilafjelag Suðursveitar leikur.
Lesa meira
Kirkjudagur í Stafafellskirkju kl. 14:00. Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Eftir messuna er boðið í kirkjukaffi í Fundarhúsinu í Lóni.
Lesa meira
Hafnarskóli kl. 10:45,
Heppuskóli kl. 10:45,
Nesjaskóli kl. 10:30,
Hrollaugsstaðaskóli kl. 14:00,
Grunnskólinn í Hofgarði kl. 10:00.
Skólaakstur verður í samræmi við ofangreindar tímasetningar.
Lesa meira
Úrslitakeppni 1. deildar kvenna
"Skaðræðiskvendin" í meistaraflokk Sindra taka á móti RKV í seinni leik liðanna um réttin til að leika til úrslita í 1. deild kvenna. Fyrri leiknum lauk með 1 - 1 jafntefli og núna verður allt lagt undir. Fjölmennum á völlin og styðjum vel við bakið á stelpunum okkar. Leikurinn fer fram á Sindravöllum ef aðstæður leifa annars á Mánavelli. Áfram Sindri
Lesa meira
2. deild karla
Síðasti heimaleikur Sindra þetta árið er gegn toppliði 2. deildar Völsungi. Mætum vel á völlin og styðjum strákana okkar. Áfram Sindri
Lesa meira