Viðburðir þann

Danssmiðjan með Línudans
18.07.2003, kl.19:00 Námskeið

Línudans í Sindrabæ

Jóhann Örn Ólafsson, danskennari úr Danssmiðjunni kennir línudans í Sindrabæ. Danssmiðjan var fyrstur dansskóla til að halda námskeið í línudansi sumarið 1996 og síðan þá hefur Jói Dans kennt þúsundum Íslendinga að stíga dansspor í línu. Af tilefni 10 ára afmælis Danssmiðjunnar er Jói nú á hringferð um landið og hafði samband við Dansklúbbinn Takt þar sem hann komst að því að það er mikill áhugi á línudans á Höfn en hér eru tveir línudansklúbbar. Kennslan hefst sem sé í Sindrabæ föstudagskvöldið 18.júlí kl.19:00 og fyrir þá sem dansað hafa áður og vilja læra meira, kostar tíminn kr.2000 og stendur í 100 mínútur. Klukkan 21:00 verður boðið upp á tíma fyrir þá sem vilja læra fyrstu sporin (byrjendur) og stendur sá tími í 50 mínútur og kostar kr.1000.

Umsjónaraðili

Félagsheimilið Sindrabær
Hafnarbraut

sindrabaer@hornafjordur.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica