Viðburðir þann

Rúna Benný
04.07.2003 - 06.07.2003, kl.13:00 - 18:00 Menning

Myndlistarsýning Rúnu Bennýar

Málverkasýningin “Tilurð” er eftir myndlistarkonuna Guðrúnu Benediktu Elíasdóttur og er í Nýheimum, allir eru hjartanlega velkomnir. Sýningin verður opin Humarhátíðarhelgina frá kl. 13-18. Þetta er fjórða einkasýning Guðrúnar Benediktu, sú þriðja hérlendis en hún hefur einnig sýnt í Frakklandi þar sem hún bjó um tíma og vann við myndlist. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum hér heima og erlendis, m.a. 1996 og 1997 hér á Höfn en listakonan er fædd hér og uppalin. Guðrún hefur unnið að myndlist ásamt kennslu síðan hún lauk námi frá Myndlista og handíðaskóla Íslands 1987. Auk þess rak hún ásamt fleiri listamönnum gallerí Skruggustein í Kópavogi í nokkur ár. Guðrún var bæjarlistamaður Kópavogs 1996. Nafn sýningarinnar Tilurð er tvírætt, það þýðir sköpun (samkvæmt orðabók menningarsjóðs) en urð er líka talsvert áberandi í verkunum sem öll eru unnin með Acryl á striga á síðustu tveimur árum.

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica