Viðburðir þann

Leirmunir Heimsókn
03.07.2003 - 06.07.2003, kl.13:00 - 18:00 Menning

Myndlistarsýning Heimsókn í Hornafjörð

Sýningin “Heimsókn í Hornafjörð”. Leirmunir, vefnaður og málverk eftir listakonurnar Önnu Sigríði Hróðmarsdóttur og Höddu "Höddu” (Guðrúnu H. Bjarnadóttur) Sýningin Heimsókn í Hornafjörð er í Pakkhúsinu og eru allir hjartanlega velkomnir. Á sýningunni eru til sýnis málverk, keramik og vefnaður eftir lisakonurnar Önnu Sigríði Hróðmarsdóttur og Höddu (Guðrúnu Hallfríði Bjarnadóttur). Anna hefur m.a unnið matarsett fyrir humarsúpumáltíð, þar sem hún notar hornfirskan sand í glerjunginn og Hadda hefur handofið dúka fyrir borðhaldið. Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, sem á ættir að rekja til Hornafjarðar útskrifðist úr Myndlistarkólanum á Akureyri 1999, en áður hafði hún starfað lengi sem leirkerasmiður eftir að hafa lært hjá Kjarval og Lökken. Hún hefur einnig tekið ýmis námskeið við Myndlista- og handíðaskólann, Myndlistaskólann í Reykjavík og við Opna Listaháskólann. Anna hefur rekið Leirkeraverkstæði frá 1977, fyrst í Suðurgötu 8 í Reykjavík, en síðan 1988 verkstæði og Keramik Gallerí ash í Lundi í Skagafirði. Hún er félagi í Samlaginu Listagalleríi í Listagilinu á Akureyri, félagi í Leirlistafélaginu og SÍM (Sambandi íslenskra myndlistarmanna) Hadda á að baki fjölbreyt nám í listum og handverki, þar sem áherslan er helst á textílvinnu og ýmislegt henni tengdri, s.s. ýmsan vefnað, jurtalitun, spuna, pappírsgerð og margt fleira. Hún hefur verið virk í sýningarhaldi frá 1986 og er félagi í Samlaginu Listgalleríi í Listagilinu á Akureyri. Sýningin í Pakkhúsinu verður opin á opnunartíma Pakkhússins til 27. júlí ( skoða má einnig www.krokur.is/ashlundur og www.listagil.is/samlagið

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica