Beint í leiðarkerfi vefsins.
Vélsmiðja Hornafjarðar veitir alla almenna bifreiðaþjónustu svo sem almennar bílaviðgerðir, smurningu og dekkjaviðgerðir. Fyrirtækið rekur öfluga vélsmiðju sem þjónar fyrirtækjum, einstaklingum og sjávarútvegi.
Fyrirtækið hóf starfsemi árið 1992 og eru eigendur þess Ari Jónsson vélatæknifræðingur og Eiríkur Jónsson vélvirkjameistari. Fyrirtækið veitir alhliða þjónustu á svið málmiðnaðar og fer starfsemi fyrirtækisins fram í nýlegu 1000m² iðnaðarhúsnæði við Hornafjarðarhöfn.