Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ísnet netaverkstæði á Höfn er hluti af Ísfelli sem er eitt öflugasta fyrirtæki á sviði veiðarfæraþjónustu á Íslandi. Að auk starfsstöðvarinnar á Höfn rekur Ísfell veiðarfæragerðir á fimm öðrum stöðum á landinu undir nafninu Ísnet. Ísnet einbeitir sér að staðbundinni veiðarfæragerð og þjónustu. Starfsstöðvar Ísnets veita jafnframt viðskiptavinum greiðan aðgang að öllu vöruúrvali móðurfélagsins og mynda þannig þéttriðið þjónustunet sjávarútvegsins.
NorðurÍs hf. var stofnað í gamla Pakkhúsinu á Höfn 22. október 1999 af Norðri ehf. sem er fyrirtæki í eigu vísindamanna og sérfræðinga sem á undanförnum árum hefur unnið að rannsóknum á kuldavirkum ensímum og hvernig hægt er að nýta ensímin í iðnaði. Vinnsla NorðurBragðs fer fram að Dalbraut 2
Fyrirtækið rekur saltfiskverkun allt árið, humarfrystingu, loðnufrystingu og síldarfrystingu, -söltun og -niðurlagningu. Við þessa starfsemi vinna 85-100 manns. Auk þess er starfrækt bolfiskfrysting á Reyðarfirði með 35- 40 starfsmönnum. Félagið á sjö fiskiskip með 60-70 manna áhöfn alls og er því heildarfjöldi starfsmanna yfirleitt á bilinu 180-210. Skipunum tilheyrir um 7.500 tonna kvóti í þorskígildum talið, þar af er 2.600 tonn þorskur. Félagið fær úthlutað um 17% humarkvótans, álíka stóran hluta síldarkvótans og um 3% loðnukvótans.