Beint í leiðarkerfi vefsins.
jjjj
Hoffell er innsti bærinn í Nesjum í Hornafirði, um 19 km. vestan við Höfn og 3 km. frá þjóðvegi nr. 1. Staðurinn er umvafinn stórbrotinni náttúru sem einkennist af miklum andstæðum og hrikaleika, allt frá flatri víðáttu til hárra fjalla, frá ísköldu jökulvatni til nýtanlegs jarðhita og frá ægilegum jökli til svartra sanda. Gistiheimilið er opið allan ársins hring. Heitar náttúrulaugar standa gestum til boða. Í Hoffelli eru einnig í boði skoðunarferðir með leiðsögn á fjórhjólum og siglingar á hjólabátum á lóni Hoffellsjökuls.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands er staðsett við Víkurbraut 26 - 31. Heilsugæslan er opin frá 8 til 16. Í neyðartilfellum hringið í 112.
Í Lyfju á Höfn er hægt að nálgast allt það helsta sem apótek hafa upp á að bjóða. Apótekið stendur við Hafnarbraut og er í alfaraleið. Einnig er hægt að kaupa ýmislegt til gjafa svo sem ilmvötn, snyrtivörur og margt fleira.
Í Sporthöllinni er rekin alhliða líkamsræktarstöð ásamt sólbaðsstofu. Lyftingatækin eru að mestu Gym 80 og upphitunartækin frá Life Fitness. Aerobicsalur er í stöðinni þar sem kenndir eru Body pump, Body step, Rope Yoga, „Crossfit“, morgunþrek og ýmsir aðrir aerobictímar. ‚ Í húsnæði Sporthallarinnar er rekin fjöbreytt starfsemi. Snyrtistofan Heilsa & Útlit, og eru þar starfandi Sigrún Sveinbjörnsdóttir snyrtifæðingur og Elín Magnúsdóttir fótaaðgerðafræðingur. Atlas Kírópraktík rekið af Dr. Söndru Sigmundsdóttir kírópraktor. Þar að auki er Sveinbjörg Jónsdóttir nuddmeistari með aðstöðu.
Ný og glæsileg 25. m. sundlaug.
Tannlæknastofan er í sama húsi og Verslunin Lónið við Vesturbraut