Fyrirtæki - Gisting

Brunnhóll

Brunnhóll - ferðaþjónusta bænda

Á Brunnhóli er boðið upp á gistingu í sérhúsi í 20 tveggja og þriggja manna velbúnum herbergjum, m.a. með sjónvarpi og hárþurrku og öll með sér baði nema tvö. Sérbúin herbergi fyrir fatlaða. Reyklaust hús. Í húsinu er gott sameiginlegt eldhús og setustofa. Símasjálfsali og aðgangur að tölvu og þráðlausu interneti. Veitingasalur opinn allan daginn þar sem hægt er að kaupa heimagerðan rjómaís, Jöklaís. Kvöld- og morgunverðarhlaðborð er í boði fyrir næturgesti.

  • Opening hours: Opnunartími er frá 1. apríl til 31. október.
  • Address: Brunnhóll - Mýrum, 781 Höfn í Hornafirði
  • Telephone: 478 1029
  • Fax: 478 1079
  • Email: brunnholl@brunnholl.is
  • Website: brunnholl.is

See more

dilksnes

Dilksnes - gistiheimili

Í Dilksnesi er boðið upp á gistingu í tveimur herbergjum með sameiginlegum aðgangi að eldhúsi og baðherbergi, um er að ræða eitt þriggja manna herbergi með 3. rúmum og eitt herbergi með tveimur rúmum og góðri koju. Dilksnes er 4. km frá Höfn og 1.km frá þjóðvegi 1. Ekki er boðið upp á morgunverð.

farfugl

Farfuglaheimilið Nýibær ehf

Á farfuglaheimilinu Nýjabæ er boðið upp á gistingu í 33 rúmum sem eru í tveggja til sex manna herbergjum. Þar af eru tvö tveggja manna herbergi með baði auk þess sem tvö baðherbergi eru sameiginleg (eitt á hvorri hæð). Boðið er upp á svefnpokagistingu auk þess sem hægt er að leigja sængurver og fá útvegaðar sængur. Hægt er að fá uppábúin rúm en þau þarf að panta með fyrirvara. Í húsinu er eldhús, sjónvarpsherbergi, reiðhjólageymsla og þvottaaðstaða fyrir gesti. Boðið er upp á morgunverð fyrir hópa. Farfuglaheimilið er vel staðsett í miðju bæjarins þar sem stutt er í alla þjónustu.

Vagnsstaðir

Farfuglaheimilið Vagnsstöðum

Á farfuglaheimilinu Vagnsstöðum eru í boði 7 herbergi, öll með handlaug. Góð eldunaraðstaða er fyrir gesti og sameiginlegt rými og einnig eru 3 smáhýsi. Á Vagnsstöðum er einnig tjaldstæði með góðri hreinlætisaðstöðu. Farfuglaheimilið er í fallegu umhverfi, stutt bæði til fjalla og niður að strönd þar sem er mikið fuglalíf. Góðar gönguleiðir eru til fjalla og  hægt er að kaupa eða leigja afnot af gönguleiðakorti, ásamt því að seld eru þar veiðileyfi. Farfuglaheimilið er vel staðsett fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við og á Vatnajökli, og þaðan er boðið er upp á 4-5 klst. jeppa- og vélsleðaferðir á jökulinn með Jöklajeppum. Skaftafell 85 km. og Jökulsárlón 30 km.

Hótel Skaftafell

Fosshótel Skaftafell, Öræfum

Hótel Skaftafell er í Freysnesi í Öræfasveit. Í Öræfum er stórbrotin náttúra og stendur hótelið við rót Svínafellsjökuls. Fallegur veitingastaður með bar er á hótelinu. Á efri hæð hótelsins er góður funda- og ráðstefnusalur auk koníaksstofu. Skammt frá er bensínsala og tjaldstæði.

See more

Fosshótel

Fosshótel Vatnajökull Nesjum

Hótelið er á kyrrlátum stað í fallegu umhverfi um 10 km. sunnan við Höfn. Þar eru í boði 26 rúmgóð tveggja manna herbergi sem öll eru með sér baðherbergi, síma og útvarpi. Á hótelinu er fallegur veitingasalur með bar þar sem opið er fyrir hópa í hádeginu, en gesti og gangandi á kvöldin. Möguleiki er á að nýta veitingasal sem fundaraðstöðu milli morgun- og hádegisverðar.

Gistiheimilið Ásgarður

Gistiheimilið Ásgarður

Á gistiheimilinu Ásgarði á Höfn er boðið upp á gistingu í 36 rúmgóðum herbergjum. Þau eru öll með sér snyrtingu og sjónvarpi. Hægt er að fá eins manns, tveggja manna og tveggja manna herbergi með auka rúmi. Morgunverður í boði. Aðgangur að þráðlausri internettengingu.  Frá Ásgarði er glæsilegt útsýni til sjávar og jökla og skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu. Stutt í alla þjónustu.

  • Opening hours: Allt árið
  • Address: Ránarslóð 3
  • Telephone: 478 1365
  • Fax: 478 1312
  • Email: asgardur@eldhorn.is
Dyngja

Gistiheimilið Dyngja

Fallegt gistiheimili staðsett niður við Höfnina.

Hafnarnes

Gistiheimilið Hafnarnes ehf.

Velbúið gistiheimili við Höfn. Eins manna og 2ja - 3ja manna herbergi, tvö baðherbergi og tvær seturstofur með sjónvarpi. Fullbúið eldhús. Frábær fjalla- og jöklasýn. Vegalengd að Jökulsárlóni 71 km., að Jöklaseli 41 km. Frábærar gönguleiðir í nágrenninu

See more

Hot tubs in Hoffell

Gistiheimilið Hoffell

Hoffell er innsti bærinn í Nesjum í Hornafirði, um 19 km. vestan við Höfn og 3 km. frá þjóðvegi nr. 1. Staðurinn er umvafinn stórbrotinni náttúru sem einkennist af miklum andstæðum og hrikaleika, allt frá flatri víðáttu til hárra fjalla, frá ísköldu jökulvatni til nýtanlegs jarðhita og frá ægilegum jökli til svartra sanda. Gistiheimilið er opið allan ársins hring. Heitar náttúrulaugar standa gestum til boða. Í Hoffelli eru einnig í boði skoðunarferðir með leiðsögn á fjórhjólum og siglingar á hjólabátum á lóni Hoffellsjökuls.

See more

Vesturhús

Gistiskálinn Vesturhús

Vesturhús er kósí skáli á láglendi. Húsið er útbúið með 6 herbergjum fyrir svefnpokagistingu í eins til tveggja manna kojum, stóru eldhúsi (útbúið öllum almennum eldhúsáhöldum og gasgrilli) og borðstofu ásamt setustofu. Í húsinu eru 2 baðherbergi með sturtum og wc. Síminn í Vesturhúsi er 474 1200. Úr húsinu er einungis hægt að hringja í 112 og umsjónarmenn húsins, sem eru ekki búsettir í sama húsi. Handklæði og rúmfatnað þurfa gestir að koma með sjálfir.

See more

Hali í Suðusveit

Hali Suðursveit

Á Hala í Suðursveit er boðið upp á gistingu allt árið um kring fyrir 45 manns í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Gisting er í tveimur húsum sem henta vel fyrir fjölskyldur og minni hópa. Hægt er fá uppábúin rúm eða svefnpokapláss. Morgunverður og aðrar veitingar eru í boði í Þórbergssetri. Yfir vetrartímann er hægt að leigja íbúð á Hala samkvæmt samkomulagi frá 1. október – 1. maí.
Merktar gönguleiðir og ratleikur þar sem verk Þórbergs Þórðarsonar koma við sögu eru í nánasta umhverfi.

 

  • Opening hours: Opið allt árið. Sérkjör yfir vetrartímann
  • Address: Hali, 781 Suðursveit
  • Telephone: 478 1073
  • Email: hali@hali.is
  • Website: www.hali.is

See more

Hólmur, gistiheimili

Hólmur á Mýrum

Ferðaþjónustan Hólmi býður upp á gistingu, fjöruferðir og er húsdýragarður á bænum. Gistingin er í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum.Í húsinu er eldunaraðstaða og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi.  Boðið er upp á morgunverð á heimili gestgjafa og einnig kvöldverð ef pantað er fyrirfram.

See more

Hótel Höfn

Hótel Höfn

Hótel Höfn er þriggja stjörnu hótel með 68 vel búnum herbergjum en gistiaðstaða er fyrir 132 manns. Öll herbergin eru búin helstu nútímaþægindum, svo sem sjónvarpi, útvarpi, síma, þráðlausri nettengingu og sér baði. Hótelið er vel staðsett í miðju bæjarins og þaðan er glæsilegt útsýni til allra átta. Góður veitinga- og fundasalur með bar er á efri hæð hótelsins og rúmar hann 140 manns. Á neðri hæð Hótelsins er veitingastaðurinn Ósinn sem rúmar 60 manns. Þar er fjölbreyttur humarmatseðill, fisk og kjötréttir, ásamt pizzum og léttum réttum.

Hótel Jökull

Hótel Jökull

Hótel Jökull er við þjóðveg 1 um 8 km. vestan við Höfn. Þaðan er glæsilegt útsýni til jökla. Boðið er upp á gistingu í 23 herbergjum með baði og 17 herbergjum með handlaug. Svefnpokagisting í kjallara í 6 herbergjum með handlaug. Á hótelinu er veitingarstaður sem býður upp á matseðil/sjávarréttahlaðborð. Veitingarstaðurinn tekur 70 manns Einnig er á hótelinu setustofa og frítt internet.

Hrollaugsstaðarskóli í fögru umhverfi

Hrollaugsstaðir gisting

Á Hrollaugsstöðum er boðið upp á gistingu í skólahúsnæði yfir sumartímann. Hægt er að velja um gistingu í uppábúnu rúmi eða í svefnpokagistingu. Þar að auki eru í boði þrjú 2-4 manna smáhýsi og tjaldstæði með snyrtiaðstöðu. Stendur við þjóðveg 1 og er ákjósanleg staðsetning fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við Vatnajökul.

  • Opening hours: Opið á sumrin

See more

Hvammur

Hvammur, gistiheimili

Hvammur er vinalegt gistiheimili á skemmtilegum stað við höfnina. Þar er boðið upp á gistingu í uppábúnum rúmum og svefnpokaplássi. Öll herbergin eru með sjónvarpi og þvottaaðstaða er á gistiheimilinu. Stutt í alla þjónustu.

Jöklaveröld

Jöklaveröld Hoffelli

Jöklaveröld býður upp á ýmsa möguleika í afþreyingu, fjórhjólaferðir með leiðsögn, hjólabátsferðir á jökullóni Hoffellsjökuls auk heitra náttúrulauga þar sem upplifunin er einstök og andstæður náttúrunnar mætast, jarðhiti og jökull. Í Hoffelli eru tvö gistiheimili.

See more

Lambhús

Lambhús

 

Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn) eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.Tjaldstæði liggur norðanvert við bæinn en þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar.

See more

Lækjarhús í Suðursveit

Lækjarhús í Suðursveit

Í Lækjarhúsum er gisting fyrir allt að 16 manns.  Boðið er uppá morgunverð og kvöldverð.  Á bænum eru hestar, kindur, kýr, hænsni, endur og hundur. Fallegar merktar gönguleiðir eru í nágrenninu.  Góð staðsetning fyrir skoðunarferðir við og uppá Vatnajökul.  Einnig er hægt að panta sérferðir, t.d. fjöruferðir eða lengri jeppaferðir að ósk hvers og eins.

See more

Skýjaborg

Skýjaborg

Vel búin íbúðargisting á Höfn. Íbúðin er 72 fermetrar. Í henni eru 3 svefnherbergi með rúmum fyrir 4-5 einstaklinga. Í íbúðinni er eldunaraðstaða, sturta og þvottavél. Góð stofa er í íbúðinni. Um er að ræða hentuga gistingu fyrir fjölskyldur.

See more

Stafafell í Lóni

Stafafell í Lóni

Stafafell í Lóni er gamall kirkjustaður.  Þar er í boði gisting í gömlu íbúðarhúsi sem hefur verið endurbyggt í upprunalegri mynd.  Þar er vel búið eldhús, matsala og þvottaaðstaða fyrir gesti. Að auki er tjaldstæði með snyrti- og eldunaraðstöðu. Náttúran umhverfis Stafafell er margbrotin.

See more

Þjónustumiðstöð tjaldstæði

Tjaldstæðið á Höfn

Þjónustumiðstöð SKG ehf rekur tjaldsvæðið á Höfn. Tjaldsvæðið stendur á fallegum stað í bænum og þaðan er stutt ganga í alla helstu þjónustu. Tjaldsvæðið er rúmgott, góð og mjög snyrtileg aðstaða, aðgangur að rafmagni, interneti og losun fyrir ferðaklósett. Sérhönnuð stæði fyrir húsbíla og húsvagna.

Hjá Þjónustumiðstöð SKG ehf er hægt að bóka í ferðir á Vatnajökul, hvort sem er gönguferðir, jeppa- eða sleðaferðir. Golfvöllur og sundlaug eru í næsta nágrenni og hægt er að fá golfsett leigð á tjaldsvæðinu.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica