Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á Brunnhóli er boðið upp á gistingu í sérhúsi í 20 tveggja og þriggja manna velbúnum herbergjum, m.a. með sjónvarpi og hárþurrku og öll með sér baði nema tvö. Sérbúin herbergi fyrir fatlaða. Reyklaust hús. Í húsinu er gott sameiginlegt eldhús og setustofa. Símasjálfsali og aðgangur að tölvu og þráðlausu interneti. Veitingasalur opinn allan daginn þar sem hægt er að kaupa heimagerðan rjómaís, Jöklaís. Kvöld- og morgunverðarhlaðborð er í boði fyrir næturgesti.
Á farfuglaheimilinu Nýjabæ er boðið upp á gistingu í 33 rúmum sem eru í tveggja til sex manna herbergjum. Þar af eru tvö tveggja manna herbergi með baði auk þess sem tvö baðherbergi eru sameiginleg (eitt á hvorri hæð). Boðið er upp á svefnpokagistingu auk þess sem hægt er að leigja sængurver og fá útvegaðar sængur. Hægt er að fá uppábúin rúm en þau þarf að panta með fyrirvara. Í húsinu er eldhús, sjónvarpsherbergi, reiðhjólageymsla og þvottaaðstaða fyrir gesti. Boðið er upp á morgunverð fyrir hópa. Farfuglaheimilið er vel staðsett í miðju bæjarins þar sem stutt er í alla þjónustu.
Á farfuglaheimilinu Vagnsstöðum eru í boði 7 herbergi, öll með handlaug. Góð eldunaraðstaða er fyrir gesti og sameiginlegt rými og einnig eru 3 smáhýsi. Á Vagnsstöðum er einnig tjaldstæði með góðri hreinlætisaðstöðu. Farfuglaheimilið er í fallegu umhverfi, stutt bæði til fjalla og niður að strönd þar sem er mikið fuglalíf. Góðar gönguleiðir eru til fjalla og hægt er að kaupa eða leigja afnot af gönguleiðakorti, ásamt því að seld eru þar veiðileyfi. Farfuglaheimilið er vel staðsett fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við og á Vatnajökli, og þaðan er boðið er upp á 4-5 klst. jeppa- og vélsleðaferðir á jökulinn með Jöklajeppum. Skaftafell 85 km. og Jökulsárlón 30 km.
Ferðafélag Austur-Skaftfellinga er áhugamannafélag sem heldur úti fjölbreyttu og öflugu félagsstarfi. Félagið rekur Múlaskála, gistiskála á Lónsöræfum. Einnig skipuleggur félagið fjölmargar gönguferðir árið um kring.
Hótel Skaftafell er í Freysnesi í Öræfasveit. Í Öræfum er stórbrotin náttúra og stendur hótelið við rót Svínafellsjökuls. Fallegur veitingastaður með bar er á hótelinu. Á efri hæð hótelsins er góður funda- og ráðstefnusalur auk koníaksstofu. Skammt frá er bensínsala og tjaldstæði.
Hótelið er á kyrrlátum stað í fallegu umhverfi um 10 km. sunnan við Höfn. Þar eru í boði 26 rúmgóð tveggja manna herbergi sem öll eru með sér baðherbergi, síma og útvarpi. Á hótelinu er fallegur veitingasalur með bar þar sem opið er fyrir hópa í hádeginu, en gesti og gangandi á kvöldin. Möguleiki er á að nýta veitingasal sem fundaraðstöðu milli morgun- og hádegisverðar.
Á Gerði er boðið upp á gistingu á tveim hæðum í sérhúsi; 8 x 2ja manna herbergi, 2 x 3ja manna og 1 x eins manns herbergi. Morgunverður og kvöldverður eru í boði. Stutt er í fjöruna en auk þess áhugaverðar gönguleiðir og Þórbergssetur er í 150 m fjarlægð.
Hoffell er innsti bærinn í Nesjum í Hornafirði, um 19 km. vestan við Höfn og 3 km. frá þjóðvegi nr. 1. Staðurinn er umvafinn stórbrotinni náttúru sem einkennist af miklum andstæðum og hrikaleika, allt frá flatri víðáttu til hárra fjalla, frá ísköldu jökulvatni til nýtanlegs jarðhita og frá ægilegum jökli til svartra sanda. Gistiheimilið er opið allan ársins hring. Heitar náttúrulaugar standa gestum til boða. Í Hoffelli eru einnig í boði skoðunarferðir með leiðsögn á fjórhjólum og siglingar á hjólabátum á lóni Hoffellsjökuls.
Vesturhús er kósí skáli á láglendi. Húsið er útbúið með 6 herbergjum fyrir svefnpokagistingu í eins til tveggja manna kojum, stóru eldhúsi (útbúið öllum almennum eldhúsáhöldum og gasgrilli) og borðstofu ásamt setustofu. Í húsinu eru 2 baðherbergi með sturtum og wc. Síminn í Vesturhúsi er 474 1200. Úr húsinu er einungis hægt að hringja í 112 og umsjónarmenn húsins, sem eru ekki búsettir í sama húsi. Handklæði og rúmfatnað þurfa gestir að koma með sjálfir.
Ferðaþjónustan Hólmi býður upp á gistingu, fjöruferðir og er húsdýragarður á bænum. Gistingin er í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum.Í húsinu er eldunaraðstaða og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi. Boðið er upp á morgunverð á heimili gestgjafa og einnig kvöldverð ef pantað er fyrirfram.
Hótel Höfn er þriggja stjörnu hótel með 68 vel búnum herbergjum en gistiaðstaða er fyrir 132 manns. Öll herbergin eru búin helstu nútímaþægindum, svo sem sjónvarpi, útvarpi, síma, þráðlausri nettengingu og sér baði. Hótelið er vel staðsett í miðju bæjarins og þaðan er glæsilegt útsýni til allra átta. Góður veitinga- og fundasalur með bar er á efri hæð hótelsins og rúmar hann 140 manns. Á neðri hæð Hótelsins er veitingastaðurinn Ósinn sem rúmar 60 manns. Þar er fjölbreyttur humarmatseðill, fisk og kjötréttir, ásamt pizzum og léttum réttum.
Hótel Jökull er við þjóðveg 1 um 8 km. vestan við Höfn. Þaðan er glæsilegt útsýni til jökla. Boðið er upp á gistingu í 23 herbergjum með baði og 17 herbergjum með handlaug. Svefnpokagisting í kjallara í 6 herbergjum með handlaug. Á hótelinu er veitingarstaður sem býður upp á matseðil/sjávarréttahlaðborð. Veitingarstaðurinn tekur 70 manns Einnig er á hótelinu setustofa og frítt internet.
Velbúið reyklaust sveitahótel, með 44 björtum og vel útbúnum tveggja og þriggja manna herbergjum með baði í flokki IV. Ágætis aðstaða fyrir fatlaða. Hárþurrkur og sjónvörp eru á öllum herbergjum. Í sameiginlegu rými er sími og þráðlaust internet. Yfir sumartímann er boðið upp á stórkostlegt kvöldverðarhlaðborð, sem saman stendur af tugum heimagerða rétta sem útbúnir eru úr úrvals hráefni úr Austur – Skaftafellssýslu, ríki Vatnajökuls. En einnig er matsala opin yfir daginn.
Á Hrollaugsstöðum er boðið upp á gistingu í skólahúsnæði yfir sumartímann. Hægt er að velja um gistingu í uppábúnu rúmi eða í svefnpokagistingu. Þar að auki eru í boði þrjú 2-4 manna smáhýsi og tjaldstæði með snyrtiaðstöðu. Stendur við þjóðveg 1 og er ákjósanleg staðsetning fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við Vatnajökul.
Hvammur er vinalegt gistiheimili á skemmtilegum stað við höfnina. Þar er boðið upp á gistingu í uppábúnum rúmum og svefnpokaplássi. Öll herbergin eru með sjónvarpi og þvottaaðstaða er á gistiheimilinu. Stutt í alla þjónustu.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á ýmiss konar jökla-
og fjallgöngur frá Vatnajökulsþjóðgarði í Skaftafelli frá 1. mars til 31.
október á hverju ári. Frá Skaftafelli er
farið í jöklagöngur á jökultungu Svínafellsjökuls og fjallgöngur á
Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands (2110 m), og Hrútsfjallstinda (1875m). Lágmarksaldur fyrir jöklagöngur er 10
ár.
Hjá Jöklajeppum- Ís og Ævintýri
eru í boði fjölbreyttar jeppa- og sleðaferðir um Vatnajökul. Vinsælast er að fara styttri sleðaferð á
Vatnajökli en þá er farið um 4,5 km inná
jökulinn. Þar að auki
skipuleggja Jöklajeppar göngu- og skíðaferðir um jökulinn. Hægt er að panta
ferðir allt árið um kring, en daglegar ferðir eru frá 1. maí til 10. september kl. 09.30 og 14.00.
Jöklamenn (Glacier Guides) er
fyrirtæki sem býður upp á fagmannlega fjallaleiðsögn og leggur metnað sinn í að
bjóða upp á fjölbreytt úrval jökla- og fjallaferða auk annarra ævintýra.
Söluskrifstofan er staðsett við Gestastofuna í Skaftafelli, með útsýni yfir
Öræfajökul sem veitir okkur innblástur og starfsorku.
Jöklaveröld býður upp á ýmsa möguleika í afþreyingu, fjórhjólaferðir með leiðsögn, hjólabátsferðir á jökullóni Hoffellsjökuls auk heitra náttúrulauga þar sem upplifunin er einstök og andstæður náttúrunnar mætast, jarðhiti og jökull. Í Hoffelli eru tvö gistiheimili.
Á Jökulsárlóni er boðið upp á 30-40 mín. siglingu á hjólabátum frá því í maí fram í september. Lónið leggur yfir veturinn og því ekki hægt að sigla allt árið um kring. Ferðirnar eru með leiðsögumanni sem upplýsir farþega um það sem fyrir augu ber. Einnig er lítill veitingaskáli við lónið þar sem hægt er að fá léttar veitingar, kaffi og minjagripi. Fyrir utan skálann er góður sólpallur þar sem ljúft er að slappa af og njóta náttúrunnar.
Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn) eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.Tjaldstæði liggur norðanvert við bæinn en þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar.
Náttból ehf. býður upp á gistingu í 11 smáhýsum sem eru staðsett á tjaldstæðinu á Höfn í Hornafirði. Húsin eru 15,4 fermetrar að stærð og skiptist það í tvö rými. Annars vegar svefnrými með fjórum kojum þar sem er svefnpláss fyrir fjóra til sex gesti og hinsvegar fremra rými þar sem eru borð og stólar auk eldunarhellu, hraðsuðuketils og brauðrist. Lítil verönd er fyrir framan húsin sem snýr á móti síðdegis- og kvöldsól. Rafmagn er í húsunum en hreinlætisaðstaða og rennandi vatn er nýtt sameiginlega með tjaldsvæðinu. Þar eru sturtur, salerni og þvottaaðstaða, sem og leiktæki fyrir börn og aðgangur að interneti.
Í Skaftafelli er boðið upp á gistingu á stóru tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu. Tjaldsvæðið er rúmgott og sérstakt svæði er ætlað fyrir húsvagna og svefnbíla. Bílastæði eru við tjaldsvæðið og frá því liggja gönguleiðir um þjóðgarðinn. Tjaldsvæðið er opið frá 1. maí til 30. september. Yfir sumartímann er hægt að fá léttar veitingar í þjónustumiðstöðinni og helsut nauðsynjar tjaldbúans
Í Skálafelli er boðið upp á gistingu í eins og tveggja manna herbergjum með aðgangi að snyrtingu og setustofu. Einnig eru 6 herbergi með baði í sérhúsi. Skálafell er um miðja vegu milli Hafnar og Jökulsárlóns og þaðan eru um 600 metrar að þjóðvegi 1. Margar fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu.
Stafafell í Lóni er gamall
kirkjustaður. Þar er í boði gisting í
gömlu íbúðarhúsi sem hefur verið endurbyggt í upprunalegri mynd. Þar er vel búið eldhús, matsala og
þvottaaðstaða fyrir gesti. Að auki er tjaldstæði með snyrti- og eldunaraðstöðu.
Náttúran umhverfis Stafafell er margbrotin.
Þjónustumiðstöð SKG ehf rekur tjaldsvæðið á Höfn. Tjaldsvæðið stendur á fallegum stað í bænum og þaðan er stutt ganga í alla helstu þjónustu. Tjaldsvæðið er rúmgott, góð og mjög snyrtileg aðstaða, aðgangur að rafmagni, interneti og losun fyrir ferðaklósett. Sérhönnuð stæði fyrir húsbíla og húsvagna.
Hjá Þjónustumiðstöð SKG ehf er hægt að bóka í ferðir á Vatnajökul, hvort sem er gönguferðir, jeppa- eða sleðaferðir. Golfvöllur og sundlaug eru í næsta nágrenni og hægt er að fá golfsett leigð á tjaldsvæðinu.
Vatnajökull Travel aðstoðar við skipulagningu á árangursríkri og ógleymanlegri dvöl í stórkostlegu umhverfi Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu. Boðið
er upp á margvíslega ferðapakka allt
árið, m.a. norðurljósaskoðun yfir veturinn. Yfir sumarmánuðina eru áætlunarferðir upp á
jökul. Öll almenn akstursþjónusta og umboð fyrir Hertz bílaleiguna á Höfn. Dekkjaþjónusta og dekk frá Sólningu.
Fjölskyldufyrirtækið Öræfaferðir á Hofsnesi býður upp á fjölbreytta afþreyingu í Öræfasveit og nágrenni allt árið um kring. Á sumrin eru í boði skemmtilegar sögu og fuglaskoðunarferðir í Ingólfshöfða. Einnig eru Öræfaferðir með byrjendavænar kajakaferðir á Hofsnesi, auk ýmiskonar fjallamennsku, skíða og klifurferða í ríki Vatnajökuls, þar á meðal göngur á Hvannadalshnúk.