Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hjá þeim systrum Hafdísi og Gunnhildi er hægt að versla afskorin blóm, blómaskreytingar, gjafavöru, íþróttafatnað og skó.
Þarftu að láta merkja eitthvað? - þá geta þær bjargað málunum. Þær merkja m.a. handklæði, svuntur, skótöskur, sundpoka, vöggusett, húfur og hárbönd að þinni ósk.
Þarftu að láta eiga við hárið á þér! Þá er tilvalið að líta við hjá Birnu hárgreiðslumeistara í Flikk, þar færð þú líka skartgripi frá Gullkúnst og Oxxo auk úrvals af gjafa- og snyrtivörum.
Gróðrarstöðin Dilksnesi er staðsett rétt fyrir utan Höfn við þjóðveg nr.1. Yfir sumartímann er hægt að kaupa þar úrval af trjám og plöntum til að gróðursetja. Fyrirtækið er rekið af Finndísi Harðardóttur
Handraðinn er verslun í hjarta Hafnar á Hornafirði. Mikil fjölbreytni er í vöruúrvali, má þar nefna listmuni úr tré, leir, gleri, steinum, þæfðri ull, bútasaum, endurunnum pappír, málverk eftir heimamenn og margt fleira. Einnig er mikið úrval af prjónavörum bæði úr ull og öðru garni. Auk þessa eru stórglæsilegar ljósmyndir úr hinni stórbrotnu náttúru Hornafjarðar. Smellið hér til að skoða Facebook síðu Handraðans.
Húsgagnaval er rótgróin verslun á Hornafirði, þar færð þú húsgögn, gallery- og gjafavöru, skartgripi og margt fleira. Þjónustulund og lipurð einkenna þjónustuna hjá hjónunum Jóa og Ólu sem eiga og reka verslunina.
Jaspis er til húsa í Miðbæ, glæsilegum verslunarkjarna í miðbæ Hafnar. Það er hún Heiða Dís sem ræður þar ríkjum og sér til þess að öllum líði vel. Auk þess að vera hárgreiðslu og snyrtistofa þá býður Jaspis upp á mikið úrval af snyrti- og gjafavöru.
Það fyrsta sem þú berð augum þegar þú gengur inn í Miðbæ sem er verslunarkjarni Hafnar er Jón Bakari. Þar er veitingasala með kaffi, súpu, smurðu brauði og drykkjum. Hægt er að sérpanta brauð fyrir afmælisboð, veislur eða hverskonar uppákomur þar sem vel á að veita.
Á Jökulsárlóni er boðið upp á 30-40 mín. siglingu á hjólabátum frá því í maí fram í september. Lónið leggur yfir veturinn og því ekki hægt að sigla allt árið um kring. Ferðirnar eru með leiðsögumanni sem upplýsir farþega um það sem fyrir augu ber. Einnig er lítill veitingaskáli við lónið þar sem hægt er að fá léttar veitingar, kaffi og minjagripi. Fyrir utan skálann er góður sólpallur þar sem ljúft er að slappa af og njóta náttúrunnar.
Í Lyfju á Höfn er hægt að nálgast allt það helsta sem apótek hafa upp á að bjóða. Apótekið stendur við Hafnarbraut og er í alfaraleið. Einnig er hægt að kaupa ýmislegt til gjafa svo sem ilmvötn, snyrtivörur og margt fleira.
Martölvan er þekkingar og þjónustufyrirtæki á sviði tölvu og fjarskiptatækni. Markmið fyrirtækisins er að veita góða og faglega þjónustu á hagkvæman hátt. Til að ná þeim markmiðum er stöðugt aukið við og endurnýjuð bæði vöru og tækniþekking.
Fyrirtækið er útibú frá aðalverslun N1 í Reykjavík. Það er Þórarinn Birgisson sem stýrir versluninni. Hjá N1 er hægt að kaupa allt milli himins og jarðar t.d varahluti í allar gerðir bifreiða, síur, boddyhluti, verkfæri, hreinsivörur og fjölbreytt úrval aukahluta. Ef varan er ekki til á staðnum þá sér Tóti um að útvega hana með næstu ferð.
Bensínstöð, þvottastöð, matvörur og nauðsynjar, grill og skyndibiti.
Netto er staðsett í Miðbæ, glæsilegum verslunarkjarna í miðbæ Hafnar. Verslunin er lágvöruverslun sem býður upp á fjölbreytt og gott vöruúrval í rúmgóðu húsnæði.
Söluskálinn er staðsettur við fjölförnustu gatnamótin á Höfn. Boðið er upp á almennt úrval af vörum söluskála svo sem sælgæti, samlokur, pylsur, ís, smávörur, grillvörur, bensín og olíu.
Í Skaftafelli er boðið upp á gistingu á stóru tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu. Tjaldsvæðið er rúmgott og sérstakt svæði er ætlað fyrir húsvagna og svefnbíla. Bílastæði eru við tjaldsvæðið og frá því liggja gönguleiðir um þjóðgarðinn. Tjaldsvæðið er opið frá 1. maí til 30. september. Yfir sumartímann er hægt að fá léttar veitingar í þjónustumiðstöðinni og helsut nauðsynjar tjaldbúans
Söluskálinn í Freysnesi er við þjóðveg nr. 1, aðeins 5 km frá þjóðgarðinum í Skaftafelli. Í versluninni er hægt að fá helstu nauðsynja og matvörur, handverk og almennar vörur fyrir ferðamanninn. Þar er einnig rekinn veitingaskáli þar sem hægt er að fá íslenskan heimilismat, val af matseðli og rétt dagsins, kaffi og kaffibrauð. Kortasjálfsali er á bensínstöðinni (Skeljungur)
Efnalaug og hreinsun ásamt stórri hannyrða og fataverslun í hjarta Hafnar. Þar er mikið úrval af fatnaði á alla fjölskylduna. Þægilegt viðmót og þjónustulund er einkennandi fyrir verslunina og efnalaugina.
Verslun Steingríms er verslun sem gaman er að heimsækja þar færð þú fatnað og ýmsar aðrar vörur. Hjá Bjarna er snyrtimennskan og þjónustulundin í fyrirrúmi.
Verslunin býður upp á gott úrval af tískufatnaði, skóm og fylgihlutum. Það eru hjónin Laufey Óladóttir og Sigurjón Gunnarsson sem reka verslunina. Verslunin er staðsett í alfaraleið við Vesturbraut.