Tónskóli fréttir
Innritun í Tónskólann
Miklar framkvæmdir hafa verið í húsnæði tónskólans í sumar. Búið er að opna leið úr aðalandyri Sindrabæjar og yfir í stigaganginn upp á loft. Litli salurinn okkar, sem alltaf var kallaður kaffistofa Sindrabæjar, hefur verið breytt í 3 kennslustofur sér hannaðar fyrir tónlistarkennslu, auk stofunnar sem búin var til fyrir ári, úr eldhúsinu. Einnig eru komnar varanlegar hurðir milli anddyris og sal Sindrabæjar, svo að neðri hæðin hefur nú góðan biðsal fyrir nemendur, 4 kennslustofur og tónleikasal, auk þess að hafa beint aðgengi að efri hæðinni. Þessar framkvæmdir er hluti af stærri breytingum sem verða á húsnæðinu en farið verður í næsta áfanga að ári. Starfsfólk skólans eru mjög ánægt með þessar breytingar og verður aðstaða til kennslu mun betri í vetur en hingað til. Engar breytingar verður á kennarahópi skólans í vetur frá því í fyrra. Rúmlega 100 nemendur munu stunda nám við skólann í vetur, auk forskólans sem hefur aðal aðsetur í Hafnarskóla.
Innritun
Fimmtudaginn 26. ágúst frá kl: 12.00 – 20.00 og
Föstudaginn 27. ágúst frá kl: 9.30– 15.00



