Útboð
Útboð á verkinu Gamlabúð – 2. áfangi
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Gamlabúð- 2. áfangi“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum. Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.
Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Gamlabúð hefur verið flutt út á Heppu og komið fyrir á steyptum kjallara. Í þessum verkáfanga á að byggja tvær timburútbyggingar við húsið ofan á steyptan kjallara sem kominn er. Grinda á út nýja veggja- og þakklæðningu á eldra húsi, einangra og klæða á ný. Í kjallara skal ganga að fullu frá innviðum, með öllum búnaði og í gamla hluta hússins eru ýmsir hlutir endurnýjaðir Td. veggir, hurðir raflagnir hitalagnir og sett upp öryggiskerfi.
Nokkrar helstu stærðir eru eftirfarandi:
- Þakklæðning og einangrun 150 m2
- Útveggjaklæðning og einangrun 210 m2
- Málaðar panilklæðningar 145 m2
- Málaðar gifsklæðningar 210 m2
Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 Höfn frá og með fimmtudeginum 8. nóv. 2012 gegn 5.000 kr. greiðslu.
Einnig er hægt að sækja útboðsgögnin hér að neðan án endurgjalds og fá lykilorð til að opna gögnin með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is - Vinsamlegast takið fram um hvaða gögn er verið að biðja.
Útboðsgögn
- 1_Gamlabud-af.2-Utbodslysing_PASS (pdf)
- 2_Gamlabud--verklys-kafli-01-adstada_PASS (pdf)
- 2_Gamlabud-verklys-kafli-02-burdarvirki_Pass (pdf)
- 2_Gamlabud-verklys-kafli-03-lagnir_Pass (pdf)
- 2_Gamlabud-verklys-kafli-04-raforkuvirki_pass (uppfært 08.11.12. kl.14:00) (pdf)
- 2_Gamlabud-verklys-kafli-05-fragangur-inni_PASS (pdf)
- 2_Gamlabud-verklys-kafli-07-fragangur-uti_Pass (pdf)
- 2_Gamlabud-verklys-kafli-09--aukaverk_pass- (pdf)
- 3_Gamlabud-2-af.-arkitektateikningar_pass (pdf)
- 3_Gamlabud-2-af.-burdar-og-lagnateikningar_pass (pdf)
- 3_Gamlabud-2-af.-raflagnateikningar_pass (pdf)
- 4_Gamlabud-af.2-tilbodsskra-forsida_Pass (pdf)
- 4_Gamlabud-af.2-tilbodsskra (Excel)
Sömu skrár nema þjappaðar
- Gamlabúð 01-UTBODSLYSING (Zip-skrá)
- Gamlabúð 02-VERKLYSINGAR (uppfært 08.11.12. kl.14:00) (Zip-skrá)
- Gamlabúð 03-TEIKNINGAR (Zip-skrá)
- Gamlabúð 04-TILBODSSKRA (Zip-skrá)
ATH. Áður en skjöl eru opnuð þarf að vista þau í tölvu viðkomandi, best er að hægrismella viðkomandi skjal og velja „Save linka as“. eða "Save Target as" (fer eftir því hvaða vafrari er notaður)
Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en þriðjudaginn 27. nóvember 2012 kl. 14:00 er þau verða opnuð.
Nánari upplýsingar veitir:
Björn Imsland, umsjónamaður fasteigna
bjorni@hornarfjordur.is
Sími 470-8000 eða 894-8413



