Útboð

Fjör á svellinu við Heppuskóla
Fjör á svellinu við Heppuskóla
(mynd úr myndasafni)

15/4/11

ÚTBOÐ - HEPPUSKÓLI ENDURBÆTUR UTANHÚSS

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið

Heppuskóli-endurbætur-utanhúss, Víkurbraut 9, Höfn.

Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.

 

Helstu stærðir eru ca. brúttó

Rif á núverandi klæðningu                         310 m2
Rif á núverandi gluggum og hurðum            18 stk.
Endur- og nýklæðning                              520 m2
Nýir gluggar /                                           18 stk.

 

Útboðið innfelur fullnaðarfrágang utanhúss en innanhúss er bráðabirgðafrágangur nýrra
glugga/hurða við núverandi klæðningar. Í nýju anddyri er fullnaðarfrágangur utan- og innanhúss. Verkið hefst strax og skóla lýkur og skal að fullu lokið eigi síðar en 24. ágúst 2011.

 

Útboðsgögn:

Útboðs og verklýsing ( pdf )

Verkteikningar arkitekt ( pdf )

Aðalteikningar arkitekt ( pdf )

Verkfræðiteikningar ( pdf )

Tilboðsskrá ( xls )

Tilboðsskrá ( pdf )

 

ATH til að hægt sé að opna "Útboðsgögn" þarf aðgangsorð (password).

Það er gert með því að senda tölvupóst á netfangið utbod@hornafjordur.is og gefa þar upp nafn þess sem biður um aðgangsorðið og fyrir hvaða fyrirtæki - aðgangsorð er sent um hæl.

Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með mánudeginum 18. apríl.  Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

 

Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27 Höfn fyrir kl. 14:00 þann 16. maí 2011 þar sem þau verða opnuð sama dag kl 14:05

 

Framkvæmda- og fjármálasvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica