Útboð
ÚTBOÐ - FRÁVEITA VIÐ LEIRUSVÆÐI
Verkið felst í því að framlengja frárennslislagnir frá núverandi rotþró á Leirusvæði að Lyngey ásamt því að framlengja lögn, sem liggur frá sundlaug Hafnar að Hrossabithaga, út fyrir núverandi grjótgarð. Inn í tilboði er m.a. gröftur fyrir lögnum þ.e, lagning lagnanna, söndun í kringum þær, fylla í lagnaskurð og jafna út fyllingu skv. teikningum, í samráði við verkkaupa og eftirlitsmann og einnig samkvæmt verklýsingum þessum og öðrum þeim gögnum sem vísað er til. Einnig er í tilboðinu að grjótverja enda lagnar frá sundlaug og fylla yfir útrás fráveitunnar fyrir vestan Lyngey.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 4. apríl 2011
Útboðsgögn:
Magnsskrá ( excel )
Útboðslýsing, verklýsing og teikningar ( pdf )
Ylfirlitsmynd ( pdf )
ATH til að hægt sé að opna "Útboðsgögn" þarf aðgangsorð (password).
Það er gert með því að senda tölvupóst á netfangið utbod@hornafjordur.is og gefa þar upp nafn þess sem biður um aðgangsorðið og fyrir hvaða fyrirtæki - aðgangsorð er sent um hæl.
Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með fimmtudeginum 24. febrúar. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00 föstudaginn 04. mars 2011 og verða þau opnuð þar kl. 14:05 þann sama dag.
Framkvæmda- og fjármálasvið Hornafjarðar



