Útboð

Ráðhúsið
Ráðhúsið

17/1/11

ÚTBOÐ - RÁÐHÚS/SVAVARSAFN

Sveitarfélagsið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í  verkið RÁÐHÚS/SVAVARSAFN:    

Verkið felst í að endurinnréttra fyrrverandi lögreglu- og slökkvistöð að Hafnarbraut 27 og koma þar upp sýningarsölum og listaverkageymslum   Jafnframt verður almóttaka hússins færð á jarðhæð með viðeigandi innréttingum og breytingum.  Þá fylgir verkinu utanhúsbreytingar, klæðning lágbygginga með standandi timburklæðningu á ál undirkerfi, nýir gluggar og hurðir.

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en  27. maí 2011

Útboðsgögn:

Magnsskrá ( excel )

Útboðslýsing, verklýsing og teikningar ( pdf )

ATH til að hægt sé að opna "Útboðsgögn" þarf aðgangsorð (password).

Það er gert með því að senda tölvupóst á netfangið utbod@hornafjordur.is og gefa þar upp nafn þess sem biður um aðgangsorðið og fyrir hvaða fyrirtæki - aðgangsorð er sent um hæl.




Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með þriðjudeginum  18. janúar.  Verð útboðsgagna er 10.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00  mánudaginn 31. janúar og verða þau opnuð þar kl. 14:05 þann sama dag.

 

Framkvæmda- og fjármálasvið Hornafjarðar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica