Útboð
Útboð á Hreinsivirki við Leiðarhöfða
Verkið felst í því að koma fyrir og ganga frá hreinsivirki/þróarkassa við Leiðarhöfða á Höfn í Hornafirði samkvæmt verklýsingum þessum og öðrum þeim gögnum sem vísað er til. Um er að ræða að grafa og fleyga fyrir hreinsivirki/þróarkassa sem er 6,5 metrar á lengd, 2,16 á breidd og 2,4 m á hæð, steypa þrifalag og botnplötu undir hreinsivirkið/þróarkassann áður en honum er komið fyrir ofan á henni. Síðan eru veggir steyptir utan um hreinsivirkið/þróarkassan og að lokum steypt plata ofan á hann.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. janúar 2011
Útboðsgögn:
ATH til að hægt sé að opna "Útboðsgögn" þarf aðgangsorð (password).
Það er gert með því að senda tölvupóst á netfangið utbod@hornafjordur.is og gefa þar upp nafn þess sem biður um aðgangsorðið og fyrir hvaða fyrirtæki - aðgangsorð er sent um hæl.
Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með fimmtudeginum 7. október. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00 fimmtudaginn 18. október 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:05 þann sama dag



