Útboð
Rekstur kaffiteríu Nýheima
Sveitarfélagsið Hornafjörður, f.h rekstraraðila Nýheima, óskar eftir tilboðum í rekstur kaffiteríu Nýheima .
Tilgangur reksturs kaffiteríu er að sjá um veitingasölu til starfsmanna, nemenda og almennings auk funda og ráðstefnugesta. Aðstaðan er leigð út með þeim tækjabúnaði sem þar er til staðar í dag, því er aðstaðan ekki ætlað undir framleiðslueldhús. Heimilt að flytja mat að aðstöðunni. Opnunartími með sölu á kaffiveitingum, sælgæti o.s.frv. þarf að vera til staðar að lágmarki frá 20. ágúst – 20. maí ár hvert og frá kl. 9:00-14:00 alla virka daga yfir þann tíma.
Nýheimar er staðsett miðsvæðis á Höfn. Í Nýheimum eru um 40 starfsmenn, 150 nemendur stunda þar nám auk þess sem húsið er opið almenningi allt árið um kring.
Nýr rekstraraðili skal hefja rekstur eigi síðar en 1. október 2010
Útboðsgögn má nálgast hér.
Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með föstudeginum 20. ágúst. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað kl. 15:00 mánudaginn 13. september 2010 og verða þau opnuð þar kl. 15:05 þann sama dag.
Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar


