Framkvæmdir
Nýtt húsnæði undir félagsmiðstöðina á Höfn
Félagsmiðstöðin Þrykkjan flytur í nýtt húsnæði við Hafnarbraut 40
Verktakar haf ný lokið við að breyta Hafnarbraut 40 í félagsmiðstöð fyrir unglinga og ungmenni á Höfn. Töluverðar lagfæringar voru gerðar innan dyra sem fólust í því að breyta skipulagi innan dyra, brjóta niður veggi, setja upp nýja veggi, lagfæra neysluvatn, mála, lagfæra gólfefni og setja upp handrið. Stefnt er að því að mála húsið að utan í sumar.
Í síðustu viku var allt dót flutt úr Sindrabæ yfir í nýja húsnæðið á Hafnarbraut 40. Húsið er næstum tilbúið og verður fyrsta opnun félagsmiðstöðvarinnar miðvikudaginn 4. mars. Síðar í mánuðinum verður svo almennileg opnunarhátíð þar sem öllum er velkomið að kíkja á herlegheitin.
Eins og sést á myndunum er allt á hvolfi ennþá en það er verið að vinna í að koma öllu vel fyrir. Húsnæðið skiptist má segja í sex hluta. Í einum hluta er dótaherbergi með billjardborði, þythokkí, fótboltaspili, borðtennis og playstation. Í öðrum hluta er setustofa þar sem verður flatskjár og og fullt af sófum þar sem er hægt að sitja og spjalla. Í þriðja hluta er klúbbaherbergi, eins konar vinnuaðstaða fyrir ýmis konar starfsemi. Svo er skrifstofa forstöðumanns í einum hluta. Uppi er svo tvískipt aðstaða, fundarherbergi og setustofa. Þessi aðstaða er hugsuð fyrir eldri hópinn, sem Ungmennahús.
Síðar verður auglýst opnunarhátíðin og opnunartímar, sem eitthvað eiga eftir að breytast.
HRG



