Framkvæmdir
Girðingarvinnu við Hæðagarð í Nesjum lokið
Jón Ingi Pálsson sá um að girða nýja girðingu við Hæðagarð. Girðingin er mun snyrtilegri en sú sem áður var.
Nonni Páls sá um að setja upp girðingu við enda Hæðagarðs í Nesjum. Girðingin er úr sama efni og girðingin í kringum frjálsíþróttavöllinn á Höfn. Girðingin sem fyrir var eyðilagðist iðulega við snjómokstur. Bundnar eru vonir við að þessi girðing þoli snjó betur og verði snyrtilegri. Hugað er að lagfæringu á körfuboltaspjaldi, neti bætt í hringinn og staurinn málaður.
HIE


