Flokkun úrgangs
Upplýsingar um sorpmál í Sveitarfélaginu Hornafirði
Skilagjaldskyldar umbúðir er hægt að skila inn í Áhaldahúsinu. Sveitarfélagið Hornafjjörður og Endurvinnslan ehf eiga með sér samstarf um móttöku á skilagjaldskyldum umbúðum frá og með áramótunum 2011/2012. Allar nánari upplýsingar má finna á vef Endurvinnslunnar www.endurvinnslan.is
Lífrænn gámur í dreifbýli er losaður einu sinni í mánuði en oftar á álagstímum í kringum sauðburð og á haustin.
Jólatréssöfnun í Nesjum og á Höfn er auglýst í byrjun janúar ár hvert.
Hreinsunardagar eru tveir í Sveitarfélaginu Hornafirði, einn á vorin og annar á haustin. Dagarnir eru kynntir nánar á þeim tímum. Á þeim dögum eru íbúar hvattir til að taka til á lóðum sínum.
Spilliefni í dreifbýli er safnað saman á haustin, og er miðað við að söfnunin eigi sér stað í nóvember eftir slátrun.
Baggaplasti í dreifbýli er að öllu jöfnu safnað saman þrisvar á ári með jöfnu millibili. Það er feb/mars, júní/júlí, okt/nóv, og oftar ef þörf krefur. Bændur sem ekki fá sótt heyrúlluplast heim er bent á að hafa samband við Hauk Inga Einarsson s: 470-8000begin_of_the_skype_highlighting 470-8000 end_of_the_skype_highlighting og óska eftir þjónustunni.
Grenndarstöðvar til sveita:
Suðursveit
o Við Þórbergssetur
o Við Hrollaugsstaði
o Við Smyrlabjargará
Mýrar
o Við Holt
Nes
o Ofan við Nesjahverfi
Lón
o Við Jökulsá í Lóni
Grenndarstöðvar á Höfn:
· Við leikskólann Lönguhóla
· Við leikskólann Krakkakot
· Við plan Krónuhússins
· Við plan Miðbæjar/Sindrahúss
Opnunartími gámaports:
- mán – fös 13:00 – 18:00
- lau 13:00 – 18:00
- sun og hátíðardaga er lokað
Algengar spurningar (pdf)
Ýmsir tenglar, http://www.fenur.is/ http://www.sorpa.is/ http://www.natturan.is/
Hægt er að nálgast gjaldskrá hér (pdf)
Vinsamlega hafið samband og tilkynnið um mál sem betur mega fara, til dæmis ef grenndarstöðvar eru orðnar fullar o.fl.
Símanúmer og netföng:
Þjónustustöð: 478-1473begin_of_the_skype_highlighting 478-1473 end_of_the_skype_highlighting, birgir@hornafjordur.is
Ráðhús: 470-8000begin_of_the_skype_highlighting 470-8000 end_of_the_skype_highlighting, haukuri@hornafjordur.is / runars@hornafjordur.is
Sveitarfélagið Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Höfn, http://www.hornafjordur.is/


