Þjónustustöð
Þjónustustöð Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bæjarverkstjóri er Birgir Árnason. birgir@hornafjordur.is 895-1473
Þjónustustöð er sameiginleg stofnun fyrir Áhaldahús og Hornafjarðarhöfn. Eru starfsmenn þeirra 11 talsins. Þar af starfa sjö manns Áhaldshúsinu, og eru þeirra helstu verkefni að halda götum, gangstéttum og opnum svæðum í bænum hreinum og snyrtilegum. Einnig er hugsað um Nesjahverfi. Viðhald gatna og gangstétta er á þeirra könnu eftir því sem tækjabúnaður og mannskapur leyfir. Einnig viðhald leiktækja á leikskólum, hjá grunnskólanum og á opnum leiksvæðum. Áhaldahúsið sér um að fráveita og vatnsveita gangi eðlilega. Fagmenn eru kallaðir til ef þörf þykir. Starfsmenn áhaldahúss sjá um að setja upp jólatré og skreyta bæinn fyrir hátíðarnar, sem og allt viðhald sem því viðkemur. Yfir sumartímann hefur vinnuskólinn og slátturhópur aðstöðu í Áhaldahúsinu, og sér starfsmaður þess um viðhald á búnaði þeirra og tækjum.
Gámaport og endurvinnsla eru rekin af Áhaldahúsinu og eru starfsmenn þess einn til fjórir eftir umfangi hverju sinni. Í Sveitarfélaginu Hornafirði eru 12 grenndarstöðvar, og sér endurvinnslan um að losa og bagga sorp úr endurvinnslustöðvum til sjávar og sveita.
Tekið er á móti garðaúrgangi í Fjárhúsvík. Þar er einungis gert ráð fyrir garðúrgangi, og eru íbúar vinsamlegast beðnir um að taka með sér plastpoka og annað slíkt eftir tæmingu.
Endurvinnslan hefur yfir að ráða öflugum trjákurlara sem sér um að kurla þann úrgang sem fellur til í Fjárhúsvík, sem og annað timbur og jólatré íbúa sem áhaldahús safnar saman að hátíðum loknum.
Starfsmenn
| Nafn | Starfsheiti | Símanúmer | netfang |
|---|---|---|---|
| Birgir Árnason |
478-1473/ 895-1473 |
birgir@hornafjordur.is | |
| Sigurður Halldórsson | |||
| Björn Jónsson | |||
Opnunartími Þjónustustöðvar:
Áhaldahús er opið frá 08:00-17:00 mánudaga til föstudaga.
Gámastöð/endurvinnsla er opin frá 13:00-18:00 alla virka daga og frá 13:00-17:00 laugardaga. Lokað er á sunnudögum.
Vinsamlegast hafið samband við Birgi Árnason í síma 895-1473 eða í netfangið birgir@hornafjordur.is ef þið hafið spurningar eða ábendingar um eitthvað sem má betur fara í starfsemi Þjónustustöðvar.


