Deiliskipulag
Tillögu að deiliskipulagi þjónustusvæði Skaftafelli í Öræfum
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir:
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir að nýju tillögu að deiliskipulagi að þjónustusvæði Skaftafelli í Vatnajökulþjóðgarði í Sveitafélaginu Hornafirði, skv. 1. mgr. 41 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010
og 7 gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Deiliskipulagssvæðið nær til þjónustuhlaðs í Skaftafelli – þjónustumiðstöðvar, gistiflata og
Sandasels á aurnum framan við Bæjarsker og Bölta – og syðsta hluta Skaftafellsheiðar –
bæjarhlaða Hæða, Sels og Bölta og brekkufótarins og giljanna austan og sunnan við þau.
Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu tillögunnar, verður til sýnis í Ráðhúsi Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 frá og með mánudeginum 11. febrúar 2012 til og með þriðjudagsins 25. mars 2013 og á heimasíðu bæjarins http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 25. mars 2012 og skal senda þær á netfangið runars@hornafjordur.is eða skila þeim í Ráðhús Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Athugsemdir sem bárust við fyrri auglýsingu eru teknar gildar. Hver sá er ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests telst henni samþykkur.
F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 10. febrúar 2013.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson yfirmaður umhverfis og skipulagsmála
Tengd gögn:
SKAFTAFELL-SKIPULAG-endursk-spt-2012-yfirlit (pdf)
SKAFTAFELL-DEILISK-ENDURSK-jan-2013_TXT (pdf)
SKAFTAFELL-SKIPULAG-endursk-spt-2012-red (jpg)
SKAFTAFELL-DEILISK-01072010-forsida (pdf)



