Deiliskipulag

Lambleiksstadir skipulag
Lambleiksstadir skipulag

11/2/13

Tillaga að deiliskipulagi fyrsta áfanga verslunar- og þjónustusvæðis fyrir ferðaþjónustuá Lambleikstöðum, Mýrum.

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir:

Tillagan eru auglýst að nýju vegna niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfi- og auðlinda í úrskurði nr. 30/2012 í máli 80/2011 þar sem vísað er til 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar segir „Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitastjórnar á tillögunni. Hafi slík auglýsing ekki verið birt innan þess frests telst tillagan ógild og fer um hana í samræmi við 41. gr.“ Þar sem tímafrestur á auglýsingu deiliskipulags Frístundasvæði Lambleikstað í B-deild Stjórnartíðinda var of langur er tillaga auglýst að nýju.

Deiliskipulagstillögurnar verða til sýnis í Ráðhúsi Sveitafélagsins Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn frá og með 11. febrúar 2013 til og með 25. mars 2013. Athugsemdarfrestur er til sama tíma. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 25. mars 2012 og skal senda þær á netfangið runars@hornafjordur.is eða skila þeim í Ráðhús Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests, telst henni samþykkur.

F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 10. febrúar 2013.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson yfirmaður umhverfis og skipulagsmála

Tengd gögn:
Lambleiksstadir deiliskipulag-29-april  (pdf)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica