Aðalskipulag
Aðalskipulag Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður, sem nær yfir alla Austur-Skaftafellssýslu varð til hinn 07.06.1998 við sameiningu Borgarhafnarhrepps, Hofshrepps, Bæjarhrepps og Hornafjarðarbæjar, en Hornafjarðarbær varð til 12.06.1994 við sameiningu Hafnar, Nesjahrepps og Mýrahrepps.
Nú er í fyrsta sinn gert aðalskipulag fyrir hið nýja sveitarfélag. Gildistími skipulagsins er 1998-2018, með fyrirvara um endurskoðun.
Skipulagið 1998-2018 er unnið samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og skipulagsreglugerð nr. 400/1998.
Aðalskipulag Hornafjarðar 1998-2018
Við sameiningu sveitarfélaganna í Austur- Skaftafellssýslu 1998 var ákveðið að fara í aðalskipulagsgerð fyrir allt sveitarfélagið, en þá var aðalskipulagsgerð fyrir Höfn og Lón nánast lokið. Það mun vera eitt stærsta skipulagssvæði sem tekið hefur verið til aðalskipulagsgerðar á þeim tíma. Gildandi aðalskipulag skiptir alla íbúa sveitarfélagsins máli enda snýst það um hvernig nánasta umhverfi þeirra er. Þess vegna er mikilvægt að íbúunum sé gefinn kostur á að fylgjast með skipulagsvinnu og koma með athugasemdir þegar þeim þykir tilefni til. Nú stendur yfir endurskoðun á aðalskipulagi Hornfjarðar og eru allar ábendingar vel þegnar.
Vonast er til að aðalskipulagið muni á næstu árum vera gott tæki til að fylgja eftir góðri og vandaðri vinnu við þróun samfélagsins í sveitarfélaginu og jafnframt því að tekið sé tillit til sérstaks náttúrufars í héraðinu.
Almenn markmið ( úr greinagerð )
Skipulaginu er ætlað að vera umgjörð sem stuðlar að eflingu atvinnulífs, mannlífs og byggðar í sveitarfélaginu.
Tekið er mið af núverandi atvinnuháttum og byggðamynstri og skipulagsákvarðanir metnar á grundvelli heildarhagsmuna byggðarlagsins.
Stefnt er að aukinni fjölbreytni í atvinnulífi, bæði í þéttbýli og dreifbýli og að á Höfn verði öflugur þjónustukjarni í góðum tengslum við sveitirnar, þar sem landbúnaður og ferðaþjónusta verða stunduð og hafa eðlilega þróunarmöguleika.
Í skipulaginu eru áform um endurbætur á samgöngumannvirkjum og byggingu nýrrar hafnar á Faxeyri á Höfn.
Lögð eru drög að verndun og varðveislu landgæða og söguminja.
Sveitarfélagið Hornafjörður er aðili að Staðardagskrá 21. Í samræmi við það er leitast við að marka því umhverfisstefnu, sem muni stuðla að sjálfbærri þróun í efnahags-, umhverfis- og samfélagsmálum.
Í þessu sambandi verður m.a horft á holræsi, fráveitumál, úrgang frá heimilum, náttúrumengun, gæði neysluvatns, hávaða og loftmengun, umhverfisfræðslu í skólum, auðlindanotkun ásamt því að áhersla verður lögð á vistvænar úrlausnir í sveitarfélaginu.
Skilgreiningar
Aðalskipulag
Skipulagsáætlun fyrir tiltekið sveitarfélag þar sem fram kemur stefna sveitarstjórnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar í sveitarfélaginu á minnst 12 ára tímabili.
Deiliskipulag
Skipulagsáætlun fyrir afmarkaða reiti innan sveitarfélags sem byggð er á aðalskipulagi og kveður á um nánari útfærslu þess. Ákvæði um deiliskipulag eiga jafnt við um þéttbýli og dreifbýli.


