Sundlaug

Hækkun á aldurstakmarki barna í sund

Ný reglugerð tók gildi um áramót

  Sundlaug Hafnar -  foreldrar/forráðamenn athugið !!!

 

Hækkun á aldurstakmarki barna í sund / ný reglugerð tók gildi um áramót
 

Samkvæmt nýrri reglugerð um almenna sund- og baðstaði á Íslandi munu aldursmörk taka breytingum og hækkuðu nú um áramótin þannig að frá og með 1. janúar 2011 eru börnum yngri en 10 ára óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri.  
Viðkomandi má ekki hafa með sér fleiri en tvö börn, nema ef um er að ræða foreldri eða forráðamann. 

Foreldrar/forráðamenn barna eru hér með vinsamlega beðnir um að virða aldursmörk þessi.

                                                                                                                                       

Forstöðum. Íþróttamiðstöðvar Hornafjarðar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica