Sindravellir
Það er alltaf vel tekið á því á Sindravöllum
Sindravellir á Höfn

Sindravellir eru íþróttasvæði við hlið íþróttahússins á Höfn. Á Sindravöllum er góður og vel búin knattspyrnu- og frjálsíþróttavöllur. Þar eru líka æfingasvæði fyrir knattspyrnu. Tartan er á hlaupa- og stökkbrautum. Sindravellir voru endurbyggðir fyrir unglingalandsmótið 2007 sem haldið var á Hornafirði.
Vallarstjórn fer með málefni Sindravalla, formaður vallarstjórnar er Haukur Helgi Þorvaldsson.
Sími: 470-8470 - Netfang: ith@hornafjordur.is


