Gjaldskrár
Gjaldskrá Slökkviliðs Hornafjarðar
Verkefni Slökkviliðs Hornafjarðar ákvarðast annarsvegar af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 m.s.br. og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
Af gjaldskyldum verkefnum skal slökkviliðið taka gjald í samræmi við þann kostnað sem stofnunin verður fyrir vegna þeirra. Gjald skal ákvarða á grundvelli vinnuframlags starfsmanna. Þegar um útkall er að ræða er að lágmarki innheimt fyrir fjóra tíma vegna hvers starfsmanns. Fast tímagjald fyrir hverja klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 9.412 krónur m.vsk.
Af umsögnum til annarra opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi skal tekið fast gjald vegna þriggja klukkustunda vinnu ef skoða þarf viðkomandi stað, en einnar klukkustundar ef umsögn er afgreidd á skoðunar staðnum.
Heimilt er slökkviliðsstjóra að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum. Falli ráðgjafavinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsingar-og leiðbeiningaskyldu skila sú vinna undanþegin gjaldi.
Sveitarfélagið Hornafjörður annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Vangreidd gjöld samkvæmt gjaldskránni skulu, þegar vægari innheimtuaðgerðir hafa ekki borið áragur, sótt fyrir dómstólum og í kjölfarið skal afla fjárnáms fyrir öllum skuldum skv. ofnagreindu. Gjöldum sem til eru komin vegna eftirlits með því að farið hefur verið að kröfum um úrbætur á eldvörnum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 2. og 3 .mgr. 29.gr laga um brunavarnir.
Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttavextir samkvæmt gjaldskrá þessari.
Gjaldskrá þessi er samin af Slökkviliði Hornafjarðar og samþykkt af Bæjarráði Hornafjarðar, með heimild í sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 með s.br. gjaldskráin tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og miðast við fjárhagsáætlun Slökkviliðs Hornafjarðar hverju sinni.
Fh. Slökkviliðs Hornafjarðar þann 11. 11.2010.
Borgþór Freysteinsson
Eldvarnafulltrúi



