Gjaldskrár

Gjaldskrá fyrir sorphirðu/sorpeyðingu árið 2010

  1. gr.


Bæjarstjórn Hornafjarðar er heimilt að leggja á sérstakt gjald vegna hirðingar og eyðingar sorps í Sveitarfélaginu Hornafirði.  Árlegt grunngjald vegna sorphirðu, sorpeyðingar og endurvinnslu í Sveitarfélaginu Hornafirði er sem hér segir


A.                                                           
Á hverja íbúð í þéttbýli og á lögbýli, eða íbúðarhúsnæði utan þéttbýlis greiðst grunngjald fyrir hverja 120 l tunnu og/eða 240 l tunnu:


Sorphirðugjald                                           10.000 kr.

Sorpeyðingargjald 240 lítra tunna                 10.000 kr.

Sorpeyðingargjald 120 lítra tunna                   5.000 kr.   

 

B.
Óski greiðendur eftir stærri/fleiri sorpílátum greiðist viðbótarsorpeyðingargjald í samræmi við lið A.  Sækja þarf um mismunandi stærð á tunnum fyrir 1. desember ár hvert.  Eingöngu er tekið það sorp sem er í sorptunnum.

C.
Á hvert frístundarhús ( sumarbústaðir o.þ.h ) er heimilt að leggja á sérstakt gjald vegna sorphirðu og/eða sorpeyðingar.  Þar sem sumarbústaðir eru 20 eða fleiri skal leggja á sérstakt gjald fyrir sorphirðu að viðbættu sorpeyðingargjaldi enda verður komið upp gámasvæði við sumarbústaðahverfi með yfir 20 bústöðum eða fleiri yfir mesta ferðamannatímann frá 1. júní – 1. september.  Í sumarhúsahverfum þar sem færri en 20 bústaðir eru eingöngu lögð á gjöld vegna sorpeyðingar.

Sorphirðugjald þar sem eru fleiri en 20 bústaðir       2.200 kr. per. bústað

Sorpeyðingargjald                                                2.500 kr. ( 1/4 af 240 l gjaldi )

 

2. gr.

Gjald fyrir sorphirðu og eyðingu samkvæmt 1. grein hér að ofan skal innheimt með fasteignagjöldum.

3. gr.

Gjaldtaka fyrir úrgang fyrirtækja og rekstur á lögbýlum svo sem búrekstur og önnur matvælaframleiðsla fer fram með eftirtöldum hætti í samræmi við 2. gr. samþykktar um sorphirðu í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 104/2000:


Umsýslu og rekstrargjald óháð stærð                                10.000 kr.

Sorpeyðingargjald fyrirtækja með gám                                 9 kr./kg.

Sorpeyðingargjald fyrirtækja með ílát                                  1.125 kr./m³


Fastagjald fyrir sorphirðu fyrirtækja skal innheimta með fasteignagjöldum.  Sorphirðuaðili sér um að skrásetja og vigta úrgang frá fyrirtækjum.  Sveitarfélagið tekur saman skráð gögn ársfjórðungslega og innheimtir í samræmi við ofangreinda gjaldskrá.  Innheimta fer fram með innheimtuseðli og skal fylgja sundurliðun kostnaðar með hverjum innheimtuseðli þar sem fram kemur hvenær ílát/gámar voru tæmdir og hvað þeir vógu mikið í þeim tilfellum sem viktað er.

4. gr.

Fyrirtæki greiða fyrir úrgang sem komið er með til gámaports við Áhaldahús eða starfsmenn Áhaldahús ná í heim á bæi.  Fyrirtæki greiða fyrir óflokkanlegan úrgang og þann úrgang sem ekki ber úrvinnslugjald.  Starfsmaður gámaports ákveður, að fenginni lýsingu úrgangshafa á úrgangi, í hvaða flokk úrgangur fellur skv. neðangreindri gjaldskrá.

1.  Án endurgjalds

·         dekk

·         bylgjupappír

·         sléttur pappír

·         mjúkt plast

·         dagblöð

·         tímarit

·         baggaplast

·         endurnýtanlegur húsbúnaður

·         endurnýtanlegur fatnaður

·         annar úrgangur til endurnotkunar


2. Óflokkaður úrgangur

  •  Járn                                                                                                          0,5   kr/kg
  • Grófur óflokkaður úrgangur [1]                                                                   1.800   kr/m³
  • Blandaður úrgangur[2]                                                                              1.700   kr/m³
  • Timbur (málað, plasthúðað og blandað)                                                     2.400   kr/m³
  • Timbur (hreint, ekki litað eða fúavarið)                                                       1.200   kr/m³
  • Lífrænn úrgangur                                                                                         12    kr/kg
  • Heimilistæki og önnur raftæki                                                                       12    kr/kg

3.  Spilliefni og mengaðs úrgangs o.þ.h sem úrvinnslugjald er ekki lagt á:

Olíusíur                                                                                                         95    kr/kg
Olíuúrgangur s.s ódælalegur úrg. og olíumengaður jarðvegur, tvistur ofl.             150    kr/kg
Lífræn spilliefni með halógenum og/eða brennisteini
[3]                                      795    kr/kg
Lífræn spilliefni án halógens og brennisteins.
[4]                                                205    kr/kg

Málning vatnsblönduð og önnur ótalin eftirlitsskyld spilliefni                                48     kr/kg
Kvikasilfursmengaður úrgangur                                                                       525    kr/kg

Oxandi- og gasmyndandi efni                                                                         855    kr/kg

Ólífræn spilliefni,[5]                                                                                      305    kr/kg

Ýmis spilliefni sem þarfnast efnagreiningar.[6]                                                   305    kr/kg


Umbúðir spilliefnamerktar/spilliefnamengaðar >100 l                                       5.600   kr/kg

Umbúðir spilliefnamerktar/spilliefnamengaðar <100 l                                       1.400   kr/kg

 

6. gr.

Sveitarfélaginu er heimilt að gera sérstaka samninga um móttöku úrgangs og aðra þjónustuþætti, þegar um er að ræða afmarkaðar eða víðtækari þjónustu en gjaldskráin tekur til.

Sveitarfélaginu er heimilt að ákveða að veita allt að 3 % afslátt af framangreindri gjaldskrá gegn skilvísri greiðslu gjalda skv. gjaldskránni.  Ennfremur er sveitarfélaginu heimilt að koma á sérstöku fyrirkomulagi sem miðar að jöfnun flutningsgjalda fyrirtækja m.t.t. staðsetningu fyrirtækja og urðunarstaðar.

7. gr.

Gjald fyrir úrgang sem komið er með til urðunar að urðunarstað í Syðra – Firði í Lóni.


Fiskúrgangur                     9    kr/kg
Sláturúrgang                     9     kr/kg
Seyra                               6     kr/kg

Enginn má losa sorp á urðunarstað sem ekki hefur sérstakan samning við Sveitarfélagið um losun úrgangs á urðunarsvæði sveitarfélagsins. 

8. gr.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjárnámi hjá úrgangshafa án undangengis dóms, sbr. lokamálslið 4. mgr. 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 m.s.br., sbr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga, sbr. lokaml. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 m.s.br..

9. gr.

Gjaldskrá þessi, er samin og samþykkt af umhverfisnefnd og staðfest af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar þann 10.12.2009 að fenginni umsögn HAUST og með stoð í 8. Gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði, nr. 104/2000, sbr. 25. Gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 m.s.br., og 11. gr.laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003 m.s.br.


Gjaldskrá tekur gildi við birtingu.  Jafnframt fellur úr gildi Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu nr 297/2005

 

F.h Bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Höfn, 22.12.2009

Hjalti Þór Vignisson

 

 



[1] Úrgangur sem þarf að flokka og vinna sérstaklega fyrir förgun og aðra meðhöndlun. Sem dæmi: teppi, dýnur, kaðlar, net, húsgögn, jarðvegur, málmar, steinefni og gler.

[2] Að mestu úrgangur sem fer ekki í skilgreindan endurvinnsluferil

og þarfnast ekki sérstakrar meðhöndlunar fyrir förgun.

[3] s.s.ýmis PCB úrgangur

[4] Etylenglýkól, frostlögur, prýlenglýkól, ediksýra, lífrænar sýrur, asfalt, amín, lífræn sölt, poýól og tektyl.

[5] s.s. brennisteinssýra, saltsýra, fosfórsýra,flúorsýra, krómsýra, málmhreinsisýrur, lútur, basísk, affitunarböð með cyaníði, galvanhúðunarböð, herðisölt,natríum hyrdoxíð, fljótandi hýpólórít, málmhydroxíðleðja,,ólífræn sölt

[6] s.s. lyf, sprautunálar, flugeldar, polyúretan úðabrúsar.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica