Gjaldskrár
Gjaldskrá og reglur bókasafns 2009
Gjaldskrá og reglur bókasafns
1. Allir lánþegar bókasafnsins sex ára og eldri eiga rétt á bókasafnsskírteini án endurgjalds. Skírteinið má sá einn nota, sem það er gefið út á.
2. Glatist skírteini þarf lánþegi að greiða 500 kr. fyrir nýtt kort.
3. Lánþegi er ábyrgur fyrir þeim safngögnum sem tekin eru út á lánsskírteini hans.
4. Útlán á bókum, myndböndum, hljóðbókum, mynd- og hljómdiskum og tímaritum eru án gjaldtöku.
5. Þjónustan Bókin heim er veitt öldruðum, öryrkjum og sjúkum sem ekki eiga heimangengt. Þar er boðið upp á heimsendingu bóka án endurgjalds. Þjónustan er einnig veitt áhöfnum fiskiskipa og til heimila í sveitarfélaginu utan Hafnar en í þeim tilvikum greiðir lánþegi sendingarkostnað eða sér um að sækja bækurnar sjálfur.
6. Fyrir sjónskerta og aðra sem ekki geta nýtt sér prentað mál býður bókasafnið upp á hljóðbækur.
7. Fyrir aðgang að Interneti eru greiddar 200 kr. notendum eru úthlutaðar 30 mínútur í senn við notkun Internets.fyrir hálftíma notkun. Ekkert gjald er tekið fyrir notkun uppflettitölva safnsins, en þær eru aðeins ætlaðar fyrir leit í Gegni. Útprentun kostar 20 kr. á hvert blað hvort sem um er að ræða uppflettitölvur eða Internetaðgang.
8. Útlánstími gagna er eftirfarandi:
· Nýjar bækur 7 dagar
· Eldri bækur 30 dagar
· Tímarit 30 dagar
· Hljóðbækur 30 dagar
· Myndbönd 2 dagar
· Myndbönd vegna námskeiða 7 dagar
· Hljómdiskar 7 dagar
9. Sektir sem greiða þarf eftir skiladag eru eftirfarandi fyrir hvert gagn á hvern dag:
· Bækur, tímarit, hljóðbækur og hljómdiskar 20 kr.
· Myndbönd 300 kr.
Ef safnaefni hefur ekki verið skilað innan 10 vikna eftir að lánsfrestur rann út telst það glatað og er lánþegum skylt að bæta það samkvæmt ákvörðun bókasafnsins.
10. Glati lánþegi gögnum frá safninu skal hann bæta fyrir með nýju eintaki eða greiðslu sem bókasafnið ákveður.
11. Millisafnalán kr. 500. kr
12. Safnefni sem er í útláni eða væntanlegt á safnið má panta gegn gjaldi sem er 50 kr. Þegar safnefnið kemur í safnið er lánþegum gert viðvart og óskast það sótt innan tveggja daga.
13. Verðskrá fyrir ljósritun á safninu er eftirfarandi:
· Hvert blað svart hvítt 20 kr.
· Í lit 30 kr.
· 100 blaða kort svart hvítt 2000 kr.
· 100 blaða kort lit 3000 kr.
· 100 blaða kort svart hvítt + lit 2500 kr.
Samþykkt í Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar 25. mars 2009.
Staðfest af Bæjarráði Hornafjarðar 14. apríl 2009.


