Gjaldskrár

Gjaldskrá fyrir heimaþjónustu Sveitarfélagsins Hornafjarðar - frá 1. janúar 2013

Samkvæmt heimild í 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Notendur greiða fyrir aðstoð við almenn heimilisstörf, heimsendingu matar og akstur. Önnur þjónusta er gjaldfrí.

Aðstoð við almenn heimilisstörf

Gjald fyrir heimaþjónustu er 2100 krónur fyrir hvern unninn tíma. Aldrei er þó innheimt fyrir meira en tveggja tíma aðstoð við heimilisstörf vikulega. Þjónusta umfram það er gjaldfrí.

Heimsendur matur

Hver skammtur kostar 890 krónur og tekur mið af gjaldskrá HSSA hverju sinni.

Innheimta

Reikningar fyrir ofangreinda þjónustu eru sendir notendum mánaðarlega, í upphafi næsta mánaðar eftir að þjónustan er innt af hendi.

Fylgigögn með umsókn

Til að hægt sé að sækja um afslátt af gjaldi fyrir heimaþjónustu þurfa eftirtalin gögn að fylgja með umsókn um heimaþjónustu, launa- eða bótaseðlar þriggja undangenginna mánaða og afrit af nýjasta skattframtali hverju sinni.

Árlega er kallað eftir endurnýjun umsókna um niðurfellingu gjalds og tekjuupplýsingum. Kjósi notendur af einhverjum ástæðum að skila ekki inn umsókn og tekjuupplýsingum fyrir tilskilinn tíma greiða þeir fullt gjald.

Tekjumörk árið 2013

Við ákvörðun tekjumarka fyrir árið 2013, er miðað við framfærsluviðmið TR í janúar 2013. Einstaklingar með tekjur undir 210.922,- krónum á mánuði og fólk sem heldur heimili saman, hvort með tekjur undir 181.769,- krónur á mánuði, eiga rétt á niðurfellingu vegna gjalds. 

Þeir sem eingöngu hafa tekjur frá TR eiga rétt á niðurfellingu gjalds fyrir ofangreinda þætti félagslegrar heimaþjónustu jafnvel þótt tekjur þeirra frá TR séu hærri en ofangreind viðmið um tekjumörk. Notendur sem hafa tekjur allt að 33% umfram framfærsluviðmið TR, greiða þriðjung af fullu gjaldi. Notendur, hverra tekjur eru á bilinu 33% til 66% af framfærsluviðmiði TR greiða tvo þriðjunga fulls gjalds. Loks greiða þeir sem hafa tekjur yfir 66% af framfærsluviðmiði TR fullt gjald skv. gjaldskrá.

Tekjumörk þeirra sem búa einir                                 Gjaldflokkar

Undir                                 210.922                                           0

Á bilinu                              210.922 – 280.526                         700

Á bilinu                              280.526 – 350.130                        1400

Yfir                                    350.130                                       2100

Tekjumörk hjóna/sambýlisfólks

Undir                                 363.538                                           0

Á bilinu                              363.538 – 483.505                         700

Á bilinu                              483.505– 603.473                         1400

Yfir                                    603.473                                       2100 

Málskot

Heimilt er að skjóta ákvörðunum starfsmanna um þjónustuna og gjaldtöku til FélagsmálaráðsHornafjarðar. Skal það gert skriflega og innan fjögurra vikna frá því notanda var kunnugt um ákvörðun starfsmanna.

Ákvörðun félagsmálaráðs má skjóta til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. Skal það gert skriflega og innan þriggja mánaða frá því notanda var kunnugt um ákvörðun ráðsins. 

Starfsmaður félagsmálaráðs skal leiðbeina umsækjendum um hvernig skuli skjóta ákvörðunum til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.

 

Samþykkt í bæjarráði Hornafjarðar 29. október 2012.



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica