Lög og reglugerðir
Lög og reglugerðir
Byggingarreglugerð

Bil milli húsa.
Bil milli húsa ska vera nægjanlegt mikil til að ekki sé hætta á að eldur ná að breiðast út á milli þeirra.
Sé ekki sýnt fram á að annað sé nægjanlega mikið til að ekki sé hætt á að eldur nái að breiðast út, en eftirfarandi töflur notaðar fyrir hús með brunaálag undir 500 MJ/m2 gólfs og með utanhúss klæðningu í flokki 1. Séu klæðningar í flokki 2 og enginn eldvarnaveggur á milli húsa skulu fjalægðir auknar um 1 m, fyrir hvort hús með klæðningu í flokki 2, og enginn eldvarnaveggur á milli húsa skulu fjarlægðir auknar um 1 m, fyrir hvort hús með klæðningu í flokki 2.
Lágmarksfjarlægðir á milli húsa.
| Brunamótstaða. | REI 30 | REI60 | REI 120-m |
| REI 30 | 8m | 7m | 0 |
| REI 60 | 7m | 6m | 0 |
| REI 12-M | 0m | 0m | 0 |
Minnka má lágmarksfjarlægð milli húsa skv. Gr. 75.2 vegna þakskeggs eða annarra útskagandi byggingarhluta, þó aldrei meira en 0,5 fyrir hvort hús.
75.4. Bramálastofnun skal gefa út leiðbeiningar um á útreikning á bili milli húsa.
Bílgeymsla.
Bílageymslur minni en 100 m2.
113.1 Bílageymsla fyrir einn bíl skal að jafnaði ekki vera stærri en 36 m2 brúttó og vegghæð fyrir miðjum aðaldyrum upp á efri brún plötu, eða efstu brún veggjar, ekki meiri en 2,70 m ef bílageymslan er með flötu þaki. Sé bílageymsluþakið með risi, eða halli meiri en 1:15, skal mesta hæð þaks ekki vera meiri en þarf til að ná múropi í dyrum 2,40 m að hæð, ásamt beranlegum veggfleti ofan dyra. Byggingarnefnd getur þó leyft stærri bílageymslur og hærri þar sem slíkt veldur ekki verulegri röskun á umhverfi og aðstæður að öðru leyti leyfa.
113.2 Um fjarlægð bílageymsla frá lóðarmörkum gilda sömu reglur og fyrir íbúðarhús.
113.3 Ef bílageymsla er nær lóðarmörkum en 3 m skal veggur sá er snýr að lóðarmörkum vera
REI-90. Veggurinn skal vera án opa og ná upp að ystu þakklæðningu.
113.4 Ef bílageymsla er nær lóðarmörkum en 1 m skal veggurinn sem snýr að lóðarmörkum vera
eldvarnarveggur REIM-120
113.5 Varðandi brunatákn og aðrar brunatæknilegar skilgreiningar vísast í 7. kafla.
113.6 Aðskilnaður á milli húss og bílageymslu skal vera EI-60, hvort sem um er að ræða
sérstæða bílageymslu eða bílageymslu sambyggða húsi. Hurð á milli húss og bílageymslu
sem er sambyggð húsi skal vera EI-CS-30 og skal hurðin ekki opnast beint inn ííbúðarrými,
heldur anddyri eða annað sambærilegt rými.
113.7 Loft- og veggklæðningar bílageymsla skulu vera í flokki 1.
113.8 Í hverri bílageymslu skal vera handslökkvitæki af viðurkenndri gerð.
113.9 Opin bílskýli, allt að 50 m2, sem samanstanda af þaki bornu af stoðum án útveggja má
byggja á lóðarmörkum. Þakefni skal vera í flokki T.


