Eldvarnareftirlit
Eldvarnareftirlit
Fulltrúi eldvarnareftirlit í Sveitarfélaginu Hornafirði er Borgþór Freysteinsson. borgthor@hornafjordur.is

Nánari lýsing á starfsemi Eldvarnareftirlits innan Slökkviðliðs Hornafjarðar.
Einn starfsmaður eldvarnareftirlits er á starfsvæði SH sem skiptist í tvo megin þætti, forvarnarfræðslu og hefðbundið eldvarnareftirlit. Eldvarnareftirlit SH vinnur í samstarfi við byggingafulltrúa, lögreglu, vinnueftirlit, heilbrigðiseftirlit, menntastofnanir vegna almenningsfræðslu og fleiri aðila í því skyni að efla brunavarnir og öryggismál almennt á starfssvæði Slökkvilið Hornafjarðar.
Framkvæmd
-
Lögð er áhersla á að ná til almennings í samvinnu við menntastofnanir á svæði
Brunavarna Hornafjarðar með sérstaka áherslu á leikskóla og grunnskóla.
-
Haldin eru námskeið í brunavörnum fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnana.
-
Skoðun fyrirtækja samkvæmt leiðbeiningarblaði frá Brunamálastofnun þar um.
Eldvarnareftirlit SH framkvæmir um 150 skipulagðar skoðanir og 10 eftirskoðanir á ári.
Skýrslur eru sendar til forráðamanna fyrirtækja þar sem kröfur um úrbætur eru gerðar ef
þörf er á. Ef um mjög alvarlega ágalla er að ræða er gerð framkvæmda áætlun í
samráði við viðkomandi forráðamann um lagfæringar á húsnæðinu.
-
Árlega að heimsækja þau heimili sem eru í mestri fjarlægð frá slökkviliðsstöð með
fræðslu um brunavarnir og rétt viðbrögð við eldsvoða.
-
Skoðunum er forgangsraðað eftir mikilvægi.
-
Skoðun teikninga og ráðgjöf.
-
Farið í skyndiskoðanir á veitinga- og skemmtistaði.
-
Skoðanir vegna leyfisveitinga að beiðni lögreglu.
-
Viðurkenningar eru veittar fyrir góðar brunavarnir að lokinni ástandsskoðun.
-
Slökkviliðsstjóri hefur rétt til setu á fundum byggingarnefndar.
Markmið
- Að á tveggja ára tímabili sé búið að framkvæma skoðanir á fyrirtækjum samkvæmt
leiðbeiningum frá Brunamálastofnun.
- Halda upp öflugri almannafræðslu.
- Að koma í veg fyrir manntjón, heilsutjón, umhverfistjón og eignatjón með virku
eftirliti og fræðslu.


