Stjórnsýslan

Reglur um leikskólabörn í skólabílum

 

Reglur þessar eru settar til að skýra rétt foreldra til að nota skólabíla fyrir leikskólabörn og til að tryggja sem best öryggi barnanna.

Sé laust pláss í skólabíl er heimilt að nýta það án endurgjalds fyrir börn á leikskólaaldri að undangengnu samþykki verktaka í skólaakstri. Foreldrar, sem þessarar þjónustu njóta, fá ekki greiddan sérstakan akstursstyrk með sínum börnum í og úr leikskóla.

Leikskólabörn skulu hafa náð þriggja ára aldri til að geta nýtt akstur með skólabíl. Elsti árgangur leikskólabarna hefur ávallt forgang ef framboð sæta í skólabílnum er takmarkað. Að öðru leyti gildir aldursröð barnanna, þau eldri hafa forgang fram yfir þau yngri.

Leikskólabörn skulu sitja í viðurkenndum bílstólum á ferðum sínum í skólabíl. Bílstólarnir eru á ábyrgð foreldra sem bera af þeim allan kostnað.

Bílstjórar skólabíla fylgja leikskólabörnunum í forstofu leikskólanna þar sem starfsmenn taka við þeim að morgni. Þegar börnin eru sótt síðdegis fylgir skólabílstjóri þeim frá forstofu leikskóla í skólabíl.

Foreldrar skulu sjálfir koma með barnið sitt (börnin sín) í leikskólann í upphafi hverrar viku og ná í það í vikulok og taka þá allt sem barnið á að hafa með sér heim þann dag.

 

Samþykkt í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar 21. september 2011   

Samþykkt í bæjarráði Hornafjarðar 3. október 2011.

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica