Atvinnu- og rannsóknasjóður Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Reglur, umsóknareyðublað og framvinduskýrsla eyðublað
1. gr.
Atvinnu- og rannsóknasjóður er sjálfstæður sjóður í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
2. gr.
Meginhlutverk sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í Austur-Skaftafellssýslu.
3. gr
Umsjón með sjóðnum er í höndum atvinnu- og menningarmálanefndar sem fjallar um umsóknir og gerir tillögur að úthlutun úr honum. Sjóðurinn úthlutar styrkjum árlega. Miðað skal við að umsóknir séu afgreiddar eigi síðar 31. janúar. Umsóknafrestur skal vera að lágmarki 4 vikur.
4. gr.
Sjóðnum er ætlað að veita styrki til verkefna sem lúta að atvinnuþróun, rannsóknum og nýsköpun í sveitarfélaginu. Þeir sem lögheimili hafa eða reka atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu hafa alla jafnan forgang að úthlutun. Styrkjum skal ekki varið í kaup á búnaði, endurbótum á húsnæði eða öðru slíku.
Sjóðnum er skipt í tvær deildir þar sem skiptingin milli deilda skal vera A deild 40% og B deild 60%.
a) Úr A deild er einungis ráðstafað styrkjum til eins eða tveggja verkefna árlega. Þau verkefni skulu vera komin á það stig að miklar líkur eru talda á að þau skili aukningu í atvinnutækifærum í sveitarfélaginu .
b) Úr B deild er ráðstafað styrkjum að upphæð allt að 600 þúsund krónur.
Við mat á umsóknum í A deild sjóðsins skal atvinnu- og menningarmálanefnd leita eftir áliti þriggja óháðra, sérfróðra aðila.
Við mat á umsóknum í B deild sjóðsins getur atvinnu- og menningarmálanefnd á hverjum tíma skipað nefnd sérfróðra aðila til að gera tillögu að úthlutun.
5. gr.
Stofnfé sjóðsins var upphaflega 20 milljónir króna sem komu af söluandvirði Sveitarfélagsins Hornafjarðar af Nesjaskóla. Árið 2010 veitti Bæjarstjórn Hornafjarðar viðbótarfé að upphæð 14 milljónum króna inn í sjóðinn.
Hver sá er vill getur veitt fé í sjóðinn án skilyrða. Stjórn sjóðsins leitar leiða til að efla sjóðinn enn frekar svo sem með framlögum frá fyrirtækjum, sjóðum, stofnunum, ríkinu og sveitarfélagi.
Varsla og ávöxtun á eignum sjóðsins skal fela í sér trausta fjárvörslu og viðurkenndar ávöxtunarleiðir.
6. gr.
Við úthlutun úr sjóðnum skal aldrei veitt meira fé ár hvert en sem nemur 20% af heildareign sjóðsins hverju sinni. Meirihluti atvinnu- og menningarmálanefndar ræður ákvörðunum ef úthlutunum er lokið með atkvæðagreiðslu.
7. gr.
Styrkir úr sjóðnum skulu ekki vera hærri en sem nemur 75% af útlögðum kostnaði við einstök verkefni og að hámarki 50% af heildarkostnaði. Forsendur styrkúthlutunar eru að um sé að ræða:
a) Verkefni sem efli atvinnu og auki fjölbreytni á svæðinu
b) Nýsköpunarverkefni
c) Rannsóknarverkefni þar sem viðfangsefnið tengist Austur-Skaftafellssýslu
8. gr.
Í umsókn skal tilgreina:
a) Markmið verkefnisins og hvernig stefnt er að því að ná þeim
b) Fjármögnun verkefnis eða starfseminnar og gögn því til stuðnings
c) Umsækjendur leggi fram kostnaðar- tíma- og verkáætlun með umsókn.
d) Hafi umsækjendur áður fengið styrki skulu liggja fyrir skilagreinar um nýtingu fyrri styrkja.
9. gr
Greiða skal styrki út samkvæmt framvindu verkefnisins. Við undirritun samnings eru greiddar 40% upphæðar, við skil framvinduskýrslu greiðast 40% og við skil lokaskýrslu 20%. Þó er heimilt að greiða þriðjung væntanlegs styrks við upphaf verksins, næsta þriðjung í samræmi við framvindu og síðasta þriðjung við verklok þegar fyrir liggur lokaskýrsla. Sé framvindu og/eða lokaskýrslu ekki skilað innan tveggja ára frá undirritun samnings, fellur styrkurinn niður og atvinnu- og rannsóknarsjóður getur krafist endurgreiðslu.
10. gr
Styrkþegum er skylt að skila framvinduskýrslu um ráðstöfun styrkfjár fyrir lok ráðstöfunarárs.
a) Breytist forsendur verksins verulega á styrktíma er styrkþegar skylt að upplýsa atvinnu- og rannsóknasjóð og fá samþykki fyrir breytingunni. Að öðrum kosti getur atvinnu- og rannsóknasjóður slitið samstarfi við styrkþega. Um endurgreiðslu á styrk fer þá eftir ákvæðum 9. gr..
b) Verði styrkþegi uppvís að röngum upplýsingum og/eða að ekki hafi verið unnið samkvæmt áætlunum er heimilt að krefjast endurgreiðslu á veittum styrk.
11. gr.
Um hæfi nefndarmanna við umfjöllun og afgreiðslu á úthlutunum úr sjóðnum ber að fara eftir sveitarstjórnarlögum.
12. gr.
Sjóðurinn skal hefja starfsemi 1. febrúar 2009. Starfslok hans skulu ákvörðuð af sveitarstjórn en endurskoðun á samþykktum, reglum og starfsemi hans skal fara fram eigi síðar en á fimm ára festi. Í ljósi þeirrar endurskoðunar skal taka ákvörðun um framhald starfseminnar.
13. gr.
Verði sú ákvörðun tekin af sveitarstjórn að hætta starfsemi sjóðsins skulu eignir hans renna í sveitarsjóð.
Samþykkt í atvinnu- og menningarmálanefnd 20. nóvember 2012
Samþykkt í bæjarstjórn Hornafjarðar 6. desember 2012.
Tengt efni
Atvinnu- og rannsóknasjóður - umsóknareyðublað (word)
Atvinnu- og rannsóknasjóður - umsóknareyðublað (pdf)
Framvinduskýrsla eyðublað (word)


