Umhverfisviðurkenning Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Umhverfisviðurkenning Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður veitir árlega einum aðila umhverfisviðurkenningu. Fyrir eftirtektarvert framtak á sviði náttúruverndar, umhverfismála og sjálfbærrar þróunar.
Tilgangur viðurkenningarinnar er að vekja íbúa til umhugsunar um gildi náttúru og umhverfis fyrir samfélag og atvinnulíf í Sveitarfélaginu Hornafirði og hvetja þá til að sýna því tilhlýðilega virðingu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Viðurkenninguna skal veita einstaklingi (um), félagasamstökum, stofnun eða fyrirtæki þ.m.t. lögbýlum til sveita, sem hefur með athöfnum sínum og snyrtimennsku verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúru og umhverfi að eðlilegum þætti í störfum sínum og rekstri eða hefur á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar náttúru og umhverfis.
Einnig veitir Sveitarfélagið Hornafjörður árlega viðurkenningar til einstaklinga fyrir snyrtilega lóð eða götu og til fyrirtækja þ.m.t. lögbýli í sveitum fyrir snyrtilega umgengni og útlit.
Viðurkenningin skal afhent á „Degi Umhverfisins“ ár hvert sem er 25. apríl.
Veita má fleirum en einum aðila umhverfisviðurkenningu í hvert sinn, telji umhverfisnefnd að fleiri en einn hafi skarað fram úr og þannig verðskuldað verðlaunin það ár. Á sama hátt má fella niður viðurkenningu komist nefndin að þeirri niðurstöðu að enginn aðili hafi unnið til hennar.
Auglýst skal eftir tilnefningum og skal þeim skilað ásamt rökstuðningi til umhverfisnefndar sem tekur ákvörðun um hver hljóti tilnefningu hverju sinni. Umhverfisnefnd hefur heimild til að tilnefna fleiri aðila til viðbótar innsendum tillögum.
Umhverfisnefnd leitast við að komast að einróma niðurstöðu um veitingu viðurkenningarinnar með umræðum innan nefndarinnar. Ef niðurstaða fæst ekki með því móti hefur formaður heimild til þess að ákveða atkvæðagreiðslu um þær tillögur sem liggja fyrir.
Samþykkt á fundi Umhverfisnefndar Hornafjarðar 08. október 2009
Staðfest í Bæjarráði Hornafjarðar 19. október 2009.


