Stjórnsýslan

Skýringar á álagningarreglum 2011


Skýringar á álagningarreglum fasteignagjalda fyrir SVEITARFÉLAGIÐ HORNAFJÖRÐ árið 2011

 

1. FASTEIGNASKATTUR.

Álagning fasteignaskatts er gerð samkvæmt II. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4, 30. janúar l995 og breytingum á þeim lögum gerðum 28. desember l995 (lög nr. l48) og 11. desember l996, en þar segir meðal annars:

 

Skatturinn skal vera sem hér segir:

A. Allt að 0,50% af fasteignamati:

Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir, sem ekki eru nytjaðar til annars en landbúnaðar, útihús og mannvirki á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði, og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.

B. Allt að 1,32% af fasteignamati

Sjúkrastofnanir skv. Lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn , að meðtöldum lóðum og lóðaréttindum.  Þó skal álagningarhlutfall vera 0,44 % af fasteignamati árið 2006 og 0,88% árið 2007.

C. Allt að 1,32% af fasteignamati:

Allar aðrar fasteignir.

Heimilt er sveitarstjórn að hækka álagningarhlutfall um allt að 25%, hundraðshluta af A- o g C- flokki

 

Skattprósentan er 0,50% í A-flokki , 1,32% í B-flokki og 1,62% í C-flokki.

 

2. LÓÐARLEIGA

Leigugjaldið 1% af fasteignamati lóðar.

 

3. VATNSGJALD

Álagning vatnsgjalds er gerð samkvæmt 7. og 8. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 8l, 27. des.1991 og breytingum á þeim lögum gerðum 1995  (lög .r 149), en þar kemur fram að sveitarstjórn skuli ákveða upphæð vatnsgjalds, sem má vera allt að 0,4% af stofni, sem er fasteignarmat að viðbættu lóðarmati. 

Vatnsgjald er 0,18%.

 

4. HOLRÆSAGJALD

Holræsagjald reiknast samkvæmt ákvæðum í gjaldskrá.

Holræsagjald er 0,30%.

 

5. SORPGJALD

Sorpgjald ákvarðast af sveitarstjórn skv. samþykktri gjaldskrá.

Sorphreinsigjald er föst upphæð 10.000 kr. á hverja gjaldeiningu og almennt sorpurðunargjald er föst upphæð, 14.000 kr. á hverja gjaldeiningu.

Samtals sorpgjöld eru því  24.000 kr. á gjaldeiningu.


Úr gjaldskrá sem tók gildi 22.desember 2009

1. gr.

A)    Íbúðir:
Einingargjald sorphirðu er                                             kr.  10.000

        Einingargjald sorpeyðingar er                                kr.  14.000

        Einingargjald sorpeyðingar 120 ltr. tunnur               kr.    5.000

C)    Frístundahús

        Sorphirðugjald þar sem eru fleiri en 20 bústaðir       kr.    2.200

        Sorpeyðingargjald                                                kr.    3.500             

       

3.gr.

Gjaldtaka fyrir úrgang fyrirtækja og rekstur á lögbýlum svo sem búrekstur og önnur matvælaframleiðsla fer fram með eftirtöldum hætti í samræmi við 2. gr. Samþykktar um sorphirðu í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 104/2000

 

        Umsýslu og rekstrargjald óháð stærð                      kr. 14.000






 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica