Stjórnsýslan

Reglur vegna óhappa og slysa barna í leikskólum

Í stórum barnahópi geta alltaf orðið óhöpp eða slys. Ef slíkt kemur fyrir hafa starfsmenn skólanna strax samband við foreldra og/eða fara með barnið á heilsugæslu ef með þarf. Öll skólabörn hjá sveitarfélaginu eru slysatryggð á meðan þau dvelja í skólanum. Komi til greiðslu bóta dregst sjálfsábyrgð frá tryggingarupphæð.
Eftirfarandi reglur gilda þegar óhöpp verða:

  1. Fyrstu viðbrögð leikskólans eru að hafa samband við foreldra ef því verður við komið. Jafnframt verði strax farið með barnið á heilsugæslustöð til aðhlynningar.
     
  2. Þurfi að leita með barn til læknis vegna slyss er það skráð í leikskólanum. Foreldrum er einnig bent á að láta tryggingafélag sitt vita af slysinu.
      
  3. Greiðsla sjálfsábyrgðar fellur á foreldra.
      
  4. Sjúkrabílakostnað greiðir skólinn ef barn slasast í skólanum eða á þeim stöðum sem barn er statt á vegum skólans.
      
  5. Foreldrar greiða allan kostnað við heilsugæslu. Komugjald í fyrstu heimsókn er þó greitt af leikskólanum.
      
  6. Varðandi skemmdir eða þjófnað á eigum nemenda er skólinn ekki skaðabóta-skyldur nema um vanrækslu sé að ræða. Foreldrum er bent á að athuga tryggingamál sín vel, t.d. að kanna hvort fjölskyldan sé með tryggingar sem bæta t.a.m. brotin gleraugu, þjófnað og fleira.
      
  7. Brjóti börn rúðu, t.d. kasti í hana grjóti, sparki o.s.frv. greiða foreldrar viðkomandi sjálfsábyrgðina sem og annað tjón sem börnin kunna að valda á búnaði og eða eigum annarra í leikskólanum.
      
  8. Verði nemandi fyrir slysi eða tjóni vegna þess að hann óhlýðnaðist fyrirmæl-um eða braut settar reglur bera foreldrar ábyrgð á þeim skaða sem af kann að hljótast.
      
  9. Þegar barn er komið í umsjá foreldra, eða annarra sem sækja barnið, í lok daglegrar vistunar bera viðkomandi ábyrgð á barninu. Það sama á við þegar komið er með barnið í upphafi vistunartíma, barnið er í ábyrgð viðkomandi uns starfsmenn hafa tekið við því.
      

  

Samþykkt í skólanefnd þann 23. febrúar 2005
Samþykkt í bæjarráði þann 3. mars 2005

  

  


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica