Reglur um styrk til greiðslu lögmannskostnaðar
sbr. 2. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
1. gr.
Félagsmálaráð Hornafjarðar veitir foreldrum og barni sem er aðili máls styrk, ef málefni þeirra sæta meðferðar fyrir félagsmálaráði Hornafjarðar, sbr. 2. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Réttur til lögmannsaðstoðar upphefst þegar barnaverndarnefnd hefur gert einhliða áætlun um beitingu þvingunar. Niðurstaða félagsmálaráðs skal liggja fyrir innan viku frá því að beiðni um styrk er lögð fram.
2.gr.
Sækja skal skriflega um framangreindan styrk. Þegar umsókn er metin skal höfð hliðsjón af fjárhag umsækjenda. Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókninni.:
- staðfest afrit af síðasta skattframtali
- afrit af síðasta álagningarseðli
- launaseðlar fyrir síðustu þrjá mánuði, ef umsækjandi er í launaðri vinnu
- greiðsluseðlar frá Tryggingastofnun fyrir þrjá síðustu mánuði, ef umsækjandi nýtur bóta almannatrygginga
- afrit af þjónustureikningi frá banka /sparísjóði
Félagsmálaráði er ekki unnt að afgreiða umsóknir um styrk nema því aðeins að fullnægjandi gögn fylgi.
3. gr.
Félagsmálaráð Hornafjarðar veitir styrk til foreldra þegar úrskurði barnaverndarnefndar Hornafjarðar er skotið til kærunefndar barnaverndarmála.
4. gr.
Styrkur til foreldra er háður því að löglærður aðstoðarmaður hafi réttindi til málflutnings fyrir héraðsrétti eða hæstarétti, sbr. 9. og 14. gr. laga nr. 61/1994 um málflytjendur. Styrkur er ætlaður til að tryggja aðstoð löglærðs aðstoðarmanns í málinu og að hagsmunir umbjóðanda hans, samkvæmt 47. gr. Andmælaregla sé virtur. Foreldrar og forsjármenn barna eða ungmenna velja sér sjálfir lögmann.
5. gr.
Við ákvörðun um fjárhæð styrks fer samkvæmt ákvæðum 2. gr. um fjárhag, en einnig er lagt mat á hæfilegu vinnuframlagi lögmanns við að gæta hagsmuna aðila í tilteknu máli. Félagsmálaráð áskilur sér rétt til að kalla eftir rökstuðningi og útlistun á vinnu lögmanns, tímaskýrslu og upplýsingum um í hverju vinnuframlag lögmannsins er fólgið. Félagsmálastjóri sér um afgreiðslu styrks til foreldra samkvæmt fyrirmælum félagsmálaráðs.
6. gr.
Reglur þessar skulu kynntar foreldrum og öðrum forsjáraðilum barns eða ungmennis ef mál þeirra sæta meðferð félagsmálaráðs Hornafjarðar og þeim lögmönnum sem taka að sér að aðstoða þá, sbr. 1. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga. nr.80/2002
7. gr.
Reglur þessar öðlast gildi við staðfestingu bæjarstjórnar Hornafjarðar.
Samþykkt í Félagsmálaráði Hornafjarðar 5. október 2004.
Samþykkt í Bæjarstjórn Hornafjarðar 27. október 2004


