Verklagsreglur barnaverndarnefndar Hornafjarðar um könnun og meðferð mála sem undir hana heyra og umboð starfsmanns
1. Starfsmaður barnaverndarnefndar vinnur á grundvelli barnaverndarlaga skv. 14. laga nr. 80/2002, í umboði nefndarinnar og formanns skv. 31. gr. sömu laga.
2. Starfsmanni ber að leggja mál fyrir nefndina þegar um er að ræða ráðstafanir barnaverndarnefndar skv. eftirfarandi greinum:
- 25. gr. um úrræði utan heimilis með samþykki foreldra og barns
- 26. gr. um úrræði án samþykkis foreldra
- 27. gr. um úrskurð barnaverndarnefndar um vistun barns utan heimilis
- 28. gr. um úrskurð dómstóls um vistun barns utan heimili
- 29. gr. um forsjársviptingu
- 30. gr. 2. málgr. um úrræði barnaverndarnefndar vegna þungaðra kvenna
- 34. gr. um endurskoðun ráðstafana
- 37. gr. um brottvikningu heimilismanns og nálgunarbann
- XII. kafli um ráðstöfun barna í fóstur
3. Mál sem leggja á fyrir barnaverndarnefnd skal ávallt leggja fyrir með greinargerð.
4. Starfsmaður getur lokað barnaverndarmáli ef ástæða þykir til án þess að leggja það fyrir nefndina. Slíka ákvörðun skal tilkynna skriflega til foreldra og benda jafnframt á heimild þeirra til að skjóta máli sínu til barnaverndarnefndar. Leggja skal málið fyrir nefndina á næsta fundi hennar.
5. Þegar starfsmaður barnaverndarnefndar tekur ákvörðun í málum skal hann ætíð geta þess í bréfi að aðilar barnaverndarmáls hafi heimild til að skjóta ákvörðun starfsmanns til barnaverndarnefndar.
6. Barnaverndarnefnd skal ætíð tilkynna foreldrum/forráðamönnum um nýtt barnaverndarmál sem í gangi er.
7. Meginreglan um fyrirlagningu mála er sú að mál eru lögð fyrir barnaverndarnefnd af starfsmanni án þess að nafna sé getið. Nefndarmaður getur þó óskað eftir upplýsingum um nöfn ef ástæða þykir til. Í úrskurðarmálum skv. 49. gr. bvl. skulu nöfn málsaðila koma fram.
Samþykkt í Félagsmálaráði Hornafjarðar 5. október 2004.
Samþykktar í Bæjarstjórn Hornafjarðar 27. október 2004


