Reglur vegna óhappa og slysa barna í grunnskólum, tónskóla og félagsmiðstöð ungmenna
Í stórum barnahópi geta alltaf orðið óhöpp eða slys. Ef slíkt kemur fyrir hafa starfsmenn skólanna strax samband við foreldra og/eða fara með barnið á heilsugæslu ef með þarf. Öll skólabörn hjá sveitarfélaginu eru slysatryggð á meðan þau dvelja í skólanum. Komi til greiðslu bóta dregst sjálfsábyrgð frá tryggingarupphæð. Eftirfarandi reglur gilda þegar óhöpp verða:
1. Fyrstu viðbrögð skólans eru að hafa samband við foreldra ef því verður við komið. Jafnframt verði strax farið með barnið á heilsugæslustöð til aðhlynningar.
2. Þurfi að leita með barn til læknis vegna slyss er það skráð í skólanum. Foreldrum er einnig bent á að láta tryggingafélag sitt vita af slysinu.
3. Greiðsla sjálfsábyrgðar fellur á foreldra.
4. Sjúkrabílakostnað greiðir skólinn ef barn slasast í skólanum eða á þeim stöðum sem barn er statt á vegum skólans.
5. Foreldrar greiða allan kostnað við heilsugæslu. Bent skal á að þurfi barn að fara oftar en einu sinni á heilsugæslu vegna óhapps, t.d. vegna umbúðaskipta, er sá möguleiki fyrir hendi að stýra þeim á þann tíma sem skólahjúkrunar-fræðingur er í skóla viðkomandi barns, því þær heimsóknir eru foreldrum að kostnaðarlausu.
6. Varðandi skemmdir eða þjófnað á eigum nemenda er skólinn ekki skaðabóta-skyldur nema um vanrækslu sé að ræða. Foreldrum er bent á að athuga tryggingamál sín vel, t.d. að kanna hvort fjölskyldan sé með tryggingar sem bæta t.a.m. brotin gleraugu, þjófnað og fleira.
7. Brjóti börn rúðu, t.d. kasti í hana grjóti, sparki o.s.frv. greiða foreldrar viðkomandi sjálfsábyrgðina sem og annað tjón sem börnin kunna að valda á búnaði og /eða eigum annarra í skólanum.
8. Verði nemandi fyrir slysi eða tjóni vegna þess að hann óhlýðnaðist fyrirmælum eða braut settar reglur bera foreldrar ábyrgð á þeim skaða sem af kann að hljótast. Samþykkt í skólanefnd þann 23. febrúar 2005 Samþykkt í bæjarráði þann 3. mars 2005


