Stjórnsýslan

Reglur um bifreiðamál Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Reglur um bifreiðamál

Sveitarfélagsins Hornafjarðar

1. gr.

Bæjarráð hefur yfirumsjón með allri bifreiðaeign sveitarfélagsins og bifreiðanotkun þess, eftir því sem segir nánar í þessum reglum. Reglurnar taka til allra stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins.

 2. gr.

 Reglur um bifreiðanotkun á vegum sveitarfélagsins eru þrenns konar eftir því hvort um er að ræða bifreiðar í eigu sveitarfélagsins, bifreiðar starfsmanna eða bílaleigubíla.

3. gr.

Þegar hagkvæmt þykir kaupir sveitarfélagið bifreiðar eða tekur á rekstrarleigu til að sinna vissum verkefnum stofnana sveitarfélagsins og rekur þær. Skulu bifreiðar sveitarfélagsins vera auðkenndar og eru einkaafnot starfsmanna af þeim óheimil. Að loknum starfsdegi skulu bifreiðar sveitarfélagsins skildar eftir í vörslu viðkomandi stofnunar. Þó er heimilt að starfsmenn hafi í sinni vörslu slíka bifreið utan hefðbundins vinnutíma en þá aðeins vegna sérstakra aðstæðna, s.s. bakvakta eða þegar von er á útköllum. Akstursbók skal halda í þeim bifreiðum sem ástæða þykir til.

4. gr.

Heimilt er að leigja bifreiðar í eigu starfsmanna til notkunar í þágu sveitarfélagsins og skal þá gera um það sérstaka samninga eða geta þess í ráðningarsamningi viðkomandi starfsmanns.

 5. gr.

Fari starfsmenn einstakar ferðir á eigin bifreið að beiðni yfirmanns skal greiða fyrir þær með akstursgjaldi samkvæmt kílómetragjaldi sem ferðakostnaðarnefnd ríkisins ákveður hverju sinni. Forstöðumenn stofnana skulu alltaf ganga úr skugga um hvort hagkvæmara sé að senda starfsmenn í einstakar ferðir á bílaleigubíl frekar en einkabifreið. Velji starfsmaður að fara á eigin bifreið í stað þess að ferðast með flugi þegar því verður við komið fær hann greitt fyrir not á bifreið sinni samkvæmt verði flugfargjaldsins.

6. gr. 

Ef ekki eru í gildi sérstakir heildarsamningar við bílaleigur eða leigubifreiðastöðvar skulu forstöðumenn leita bestu kjara hverju sinni vegna aksturs á vegum viðkomandi stofnana. Á reikningi frá bílaleigum sem skilað er til greiðslu, skulu koma fram, auk dagsetningar og undirskriftar, upplýsingar um erindi ferðarinnar, vegalengd og ákvörðunarstaði, annaðhvort skráðar á reikninginn sjálfan eða sérstakt fylgiskjal með honum. 

7. gr.

Framkvæmdastjórar sviða skulu hafa eftirlit með framkvæmd þessara reglna og úrskurða um öll efnis- eða vafaatriði þeirra.

8. gr.

Reglur þessar skulu taka gildi frá og með 1. febrúar 2004.

Samþykkt í bæjarráði 8. janúar 2004  

Albert Eymundsson

bæjarstjóri




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica