Stjórnsýslan

Reglur um Menningarverðlaun Hornafjarðar

1. Menningarmálanefnd Hornafjarðar veitir árlega viðurkenningu; Menningarverðlaun Hornafjarðar. Verðlaunin eru veitt fyrir febrúarlok ár hvert.

2. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu.

3. Verðlaunin eru í formi heiðursskjals, sem formaður nefndarinnar undirritar.

4. Veita má fleirum en einum aðila menningarverðlaun í hvert sinn, telji menningarmálanefnd að fleiri en einn hafi skarað fram úr og þannig verðskuldað verðlaunin það ár. Á sama hátt má fella niður verðlaunaveitingu komist nefndin að þeirri niðurstöðu að enginn aðili hafi unnið til þeirra.

5. Menningarmálanefnd leitast við að komast að einróma niðurstöðu um veitingu verðlaunanna. Ákvörðun skal tekin á fundi nefndarinnar í janúar ár hvert. Skal hver nefndarmaður leggja fram tilnefningar um verðlaunahafa sem honum sýnast helst koma til greina. Að því búnu fer fram almenn umræða í nefndinni um þær tilnefningar sem liggja fyrir. Ef niðurstaða þeirra umræðna leiðir ekki til einróma niðurstöðu hefur formaður heimild til þess að ákveða leynilega atkvæðagreiðslu um tillögurnar.

Samþykktar á fundi Menningarmálanefndar Hornafjarðar 9. desember 1998

Staðfestar af Bæjarráði Hornafjarðar á fundi 6. janúar 1999




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica