Stjórnsýslan

Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði

frá 1. október 2011

 

Samþykkt í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd 21. september 2011.
Samþykkt í bæjarráði 3. október 2011.
Breyting um opnunartíma samþykkt í bæjarráði 21.maí 2012

 

  • Gildistaka

Reglur þessar gilda frá og með 1. október 2011.

Í sveitarfélaginu eru tveir leikskólar, Krakkakot og Lönguhólar. Gilda eftirfarandi reglur fyrir báða þessa skóla.

  • Fyrsta skólastigið

Leikskólinn er fyrsta skólastig barnsins. Að vera í leikskóla er ákveðinn áfangi á menntabrautinni. Allt leikskólastarf miðast við samfellda viðveru barns í leikskóla alla virka daga vikunnar. Því er mikilvægt að barn mæti vel og tímanlega og geti tekið þátt í þeirri þróun sem á sér stað í leik og starfi.

  • Aldursmörk

·         Öll börn eins árs og eldri skulu eiga kost á leikskólagöngu þegar leikskólapláss eru laus. Börn fá leikskólapláss eftir dagsetningu umsóknar.

·         Börn sem náð hafa þriggja ára aldri hafa þó forgang um leikskólapláss fram yfir þau sem yngri eru og færast fram fyrir þau á biðlista sé hann fyrir hendi.

·         Börn sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður að mati félagsmálayfirvalda njóta forgangs.

  • Opnunartími

·         Árlegur starfstími leikskólanna er ellefu mánuðir. Á tímabilinu júlí – ágúst eru skólarnir lokaðir samfellt í 21 virkan dag.

·         Leikskólarnir starfa 5 virka daga í viku frá klukkan 7:45 – 16:15

  •  Umsóknir

·         Öllum umsóknum um leikskólapláss skal skilað til skólaskrifstofu sveitarfélagsins. Fram komi á umsóknarblaði um hvorn leikskólanna er sótt og hvert sé þá annað val umsækjanda.

·         Hægt er að sækja um leikskólapláss þegar börn hafa náð 9 mánaða aldri.

·         Sé leikskólaplássi sagt upp færist það barn aftast á biðlista án tillits til aldurs þess.  

  • Greiðslur og skólatímar

·         Skóli hefst kl. 7:45 og lýkur 16:15. Greiðslur miðast við fjölda klukkustunda og brot úr klukkustund sem barn dvelur í leikskóla. Að öðru leyti er upphaf og lok skólatíma ákvarðað af leikskólunum. Skulu skólatímar liggja fyrir í upphafi hvers skólaárs.

  •  Leikskólagjöld og afsláttur frá þeim

·         Á innheimtuseðli kemur fram kostnaður vegna skólatíma annars vegar og fæðis hins vegar. Gjald fyrir skólatíma byggir á föstu verði á klukkustund og miðast við mánuð í senn. Fólk er beðið um að fylgjast með sundurliðun á innheimtuseðli og láta vita ef þeir eru ekki réttir. Leiðrétt er 3 mánuði aftur í tímann.

·         Greiðsla fyrir skólatíma og fæði fara saman. Því skal greiða fyrir allt fæði, það er morgunverð/morgunhressingu, hádegisverð og síðdegisverð, sem fram er borinn á skólatíma hvers barns.

·         Veittur er systkinaafsláttur með eftirfarandi hætti: 50% af grunngjaldi með öðru barni og 100% af grunngjaldi með þriðja barni.

·         Einstæðir foreldrar fá 30% afslátt af leikskólagjaldi en greiða hins vegar fullt fyrir fæði barna sinna.

·         Fari skuld á skólagjöldum fram yfir 3 mánuði er litið svo á að leikskólaplássi sé sagt lausu, að undangenginni aðvörun. Foreldrum ber þá að taka barn sitt úr leikskólanum og jafnframt er hægt að ráðstafa plássinu til annarra barna.

·         Óski foreldrar eftir því að taka barn sitt úr leikskóla um skeið verður að greiða öll skólagjöld til að tryggt sé að barnið haldi plássinu. Þó er mögulegt að sækja um undanþágu frá greiðslu fæðis ef barn er utan leikskóla í einn mánuð eða lengur.

·         Komi upp alvarleg veikindi hjá börnum um lengri tíma er hægt að sækja um niðurfellingu leikskólagjalda.

·         Uppsögn á leikskólaplássi þarf að vera skrifleg og berast fyrir 20. hvers mánaðar.

·         Allar óskir um breytingar á skólatíma þurfa að vera skriflegar og berast leikskólastjóra fyrir 20. hvers mánaðar. Gildir sú dagsetning þegar sótt er um breytingu.

·         Þegar sótt er um leikskóladvöl fyrir barn þarf viðkomandi að vera með skráð lögheimili í sveitarfélaginu. Undan þessu ákvæði má víkja þegar sýnt er að umsækjandi hyggst flytja lögheimili sitt í sveitarfélagið og hefja þar störf. Þarf umsækjandi að staðfesta þetta með skriflegri yfirlýsingu sinni og væntanlegs vinnuveitanda. Barn hefur þó aldrei leikskólagöngu fyrr en flutningur lögheimilis hefur átt sér stað.

  •  Veikindi og smithætta

·         Óheimilt er að hafa veikt barn í leikskóla. Börn skulu vera minnst 1 - 2 daga heima hitalaus Við ákvörðun um inniveru eftir veikindi skal farið eftir reglum viðkomandi leikskóla.

·         Fái barn smitandi sjúkdóm, s.s. hlaupabólu, fimmtu veikina eða annað sem smitast á milli manna, s.s. njálg, lús, kossageit, augnvírus, verður það að dvelja heima þar til smithætta er liðin hjá. Lúsasmit ber að tilkynna til leikskóla og heilsugæslu og njálg til leikskóla.

·         Greinist barn með óþol, ofnæmi, astma eða annað sem krefst sérstakrar meðhöndlunar í leikskóla skal skila læknisvottorði því til staðfestingar.

·         Foreldrar/forráðamenn eiga að láta starfsfólk vita ef barn kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða einhvers annars.  

  • Börn á leið í og úr leikskóla, fatnaður o. fl.

·         Óheimilt er að senda barn eitt í leikskólann eða skilja það eftir án þess að hafa samband við starfsfólk. Sama gildir þegar barnið er sótt.

·         Óheimilt er að yngri börn en 11 ára komi með eða sæki barn í leikskólann.

·         Ef aðrir en foreldrar sækja börn verður starfsfólk að fá um það skilaboð frá foreldrum.

·         Ávallt skal hafa nóg af aukafötum og hlýjum fatnaði með barninu. Fatnaður  barnsins skal vera vel merktur.  Leikskólinn tekur ekki ábyrgð á fatnaði sem glatast.

·         Leikskólarnir taka ekki ábyrgð á leikföngum eða öðrum munum sem barnið hefur með sér að heiman.

 

 

 

 

 

 

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica