Skipulagsskrá fyrir Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs
1. grein
Sjóðurinn heitir Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs. Sjálfseignarstofnunin Skjólgarður er stofnandi sjóðsins.
2. grein.
Heimili sjóðsins og varnarþing er í Hornafjarðarbæ, Austur Skaftafellssýslu.
3. grein
Stofnfé sjóðsins er kr. 2.000.000.- og má ekki skerða þá fjárhæð. Stofnféð skal árlega taka breytingum m.v. neysluverðsvísitölu og skal miðað við grunnvísitöluna. 174,2 stig. Auk stofnfjár er eign sjóðsins kr. 8.665.017,-í Janúar 1996.
4. grein.
Tilgangur sjóðsins er: 1. Að taka þátt í að fjármagna kaup á tækjum og búnaði fyrir sjálfseignarstofnunina Skjólgarð. 2. Að stuðla að eflingu heilbrigðis- og öldrunarþjónustu í Austur Skaftafellssýslu með fjárframlögum í einstök verkefni, þó ekki til almenns rekstrar.
5. grein.
Tekjur sjóðsins eru: 1. Gjafir og áheit til sjóðsins 2. Sala minningarkorta Skjólgarðs 3. Vextir og arður af eignum sjóðsins 4. Aðrar tekjur.
6. grein.
Stjórn sjóðsins ákveður framlög úr sjóðnum hverju sinni.
7. grein.
Stjórn sjóðsins skipa þrír menn og 2 til vara. Þeir eru tilnefndir af Heilbrigðis- og öldrunarráði Austur Skaftafellssýslu í upphafi hvers kjörtímabils nýrrar Sýslunefndar Austur Skaftafellsýslu. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
8. grein.
Ársreikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir árlega af löggiltum endurskoðanda. Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksárið. Ársreikningur skal undirritaður af stjórn sjóðsins fyrir lok júní ár hvert og sendur Ríkisendurskoðun eins og lög og reglur mæla fyrir um.
9. grein.
Stjórn sjóðsins varðveitir eignir hans. Hún skal leitast við að ávaxta sjóðinn á sem hagkvæmastan og öruggastan hátt.
10. grein.
Breytingar á skipulagsskrá þessari má gera ef það er talið nauðsynlegt vegna breyttra aðstæðna eða annarra ríkra ástæðna. Engin breyting á skipulagsskrá fær þó gildi nema til komi samþykki allra stjórnarmanna í Heilbrigðis- og öldrunarráði Austur Skaftafellssýslu.
11. grein.
Ef sjóðurinn verður lagður niður þá skulu eignir sjóðsins renna til Sýslunefndar Austur Skaftafellssýslu sem skal ráðstafa þeim í þágu aldraðra í Austur Skaftafellssýslu.
12. grein.
Leita skal staðfestingar dómsmálaráðherra á skipulagsskrá þessari, sbr. lög nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Hornafirði, 15. október 1996 Í Heilbrigðis- og öldrunarráði Austur Skaftafellssýslu.


