Skipulagsskrá fyrir Listvinasjóð Hornafjarðar
1. gr.
Sjóðurinn heitir "Listvinasjóður Hornafjarðar".
2. gr.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja lista- og menningarlíf á Hornafirði og vera bakhjarl menningarmálanefndar í störfum hennar.
3. gr.
Stofnfé sjóðsins er kr. 504.000,-. Fjárvarsla er í höndum Sparisjóðs Hornafjarðar eftir nánara sam-komulagi, en ávöxtun sjóðsins skal fara fram á vísitölubundnum innlánsreikningi eða með annarri sam-bærilegri aðferð, sem stjórn sjóðsins ákveður á hverjum tíma í samráði við fjárvörsluaðila. Berist gjafafé til sjóðsins skal því ráðstafað af sjóðstjórn, nema fram hafi komið sérstakar óskir um ráðstöfun af hálfu gefanda.
4. gr.
Tekjur sjóðsins eru nettóvaxtatekjur af stofnfé og annað það fé sem sjóðnum áskotnast. Árleg framlög styrktaraðila sjóðsins teljast jafnframt til tekna hans.
Tekjum sjóðsins skal varið í þágu tilgangs hans og til að styrkja viðburði sem menningarmálanefnd Hornafjarðar stendur fyrir. Einkum og sér í lagi skulu framlög úr sjóðnum renna til þess að fá listamenn annars staðar að, heim í hérað til þess að standa þar að viðburðum. Stjórn sjóðsins ákveður fjárveitingar úr sjóðnum samkvæmt nánari reglum sem settar verða af menningarmálanefnd.
5. gr.
Stjórn sjóðsins skipa þrír menn tilnefndir af menningarmálanefnd. Einn varamaður í stjórn er jafnframt tilnefndur af nefndinni. Stjórnarmenn og varamaður skulu tilnefndir til tveggja ára í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Stjórnarmaður skal víkja sæti við umfjöllun um fjárveitingar ef verkefnið snertir náið skyldmenni hans eða aðra þá sem telja verður að tengist stjórnarmanni svo, að hann geti ekki talist hlutlægur í umfjöllun sinni. Tekur varamaðurinn þá sæti hans sem og ef önnur forföll verða meðal stjórnarmanna.
Við ákvarðanir innan sjóðsins, þ.á m. um úthlutun ræður einfaldur meirihluti stjórnarmanna.
7. gr.
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Sjóðsstjórn skal semja reikninga fyrir 1. mars ár hvert og skulu þeir endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun.
Stjórnarmenn skulu ekki hljóta þóknun fyrir starfa sinn.
8. gr.
Breytingar á stofnskrá þessari mega fara fram ef allir stjórnarmenn eru sammála um breytingar á henni og dómsmálaráðherra heimilar eftir umsögn Ríkisendurskoðunar.
9. gr.
Verði ákveðið að leggja niður sjóðinn, skulu eignir hans renna óskiptar til Sýslusafns Austur-Skafta-fellssýslu, enda liggi fyrir samþykki dómsmálaráðuneytis og Ríkisendurskoðunar fyrir þeirri ráðstöfun.
Leita skal staðfestingar dómsmálaráðuneytisins á skipulagsskrá þessari, sem sett er skv. ákvæðum laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
Hornafirði 25. febrúar 2000.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar


