Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Reglur þessar koma í stað vinnureglna sem farið hefur verið eftir en ekki hlotið staðfestingu í bæjarráði. Þeim er ætlað að hvetja foreldra til að nýta leikskólavist fyrir börnin sín og um leið að draga úr þeim mismun sem búseta langt frá þjónustu getur haft í för með sér.
Sveitarfélagið greiðir foreldrum styrk vegna aksturs með börn í leikskóla samkvæmt eftirfarandi:
· Þeir sem þurfa að aka meira en 15 kílómetrar frá heimili að leikskóla eiga rétt á styrk.
· Akstur umfram þá vegalengd skal greiddur samkvæmt eftirfarandi útreikningum: (Vegalengd – 15 kílómetrar) x 2. Dæmi (25 km – 15) x 2 = 20 km.
· Aðeins skal greiða sem nemur einni ferð á dag að morgni eða síðdegis.
· Miða skal greiðslur við lægsta taxta sem gefinn er út af ríkisskattstjóra hverju sinni.
· Akstur foreldra skal staðfestur af leikskóla áður en til greiðslu kemur.
· Hámarksupphæð á ári skal ekki fara fram yfir krónur 400.000.- og miðast við neysluvísitölu í október 2011 Ef barn (börn) er (eru) í leikskóla hluta úr ári skal hámarksgreiðsla taka mið af lengd tímabilsins.
· Reglurnar taka gildi 1. nóvember 2011.
Fyrst samþykkt í bæjarráði Hornafjarðar þann 21. nóvember 2002
Samþykkt með breytingum á 6. lið í skólanefnd Hornafjarðar þann 29. nóvember 2006.
Samþykkt með breytingum á 6. lið í bæjarráði Hornafjarðar þann 5. desember 2006.
Samþykkt með breytingum á 6. og 7. lið í bæjarráði Hornafjarðar 17. október 2011.


